Ríkisstjórnin lofaði lika aðgerðum í lifskjara samningnum sem aldrei voru framkvæmdar
Mér fannst Sólveig koma vel frá þessu viðtali. Hún var rökföst, talaði skýrt og málefnalega og lagði spilin á borðið. Ég er mun hrifnari af þessari útgáfu af henni en þeirri útgáfu hennar sem iðkar reiðilestra og notar gífuryrði. Nú tala ég vitaskuld ekki fyrir neinn nema bara mig sjálfan, en hún sannfærði mig betur um málstað sinn í þessu viðtali en nokkurri annarri opinberri framkomu til þessa.
Íbúðabyggð í Breiðholti í þeirri mynd sem þekkist í dag á rætur að rekja til hins svokallaða Júnísamkomulags verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurekenda sem gert var í júní árið 1964. Í samkomulaginu fólst að í kjarasamningum yrði samið um ýmsar félagslegar umbætur í stað beinna launahækkana. Á þetta reyndi ári seinna þegar erfiðar kjaraviðræður stóðu yfir. Mikill húsnæðisskortur var í Reykjavík og sérstaklega erfitt ástand var á leigumarkaði og bjó margt fólk við erfiðar aðstæður í hrörlegu húsnæði víða um borgina. Úr varð að stjórnvöld, verkalýðshreyfing og atvinnurekendur tóku höndum saman og ríkisstjórnin sendi frá sér yfirlýsingu þar sem fram kom að ráðist yrði í stórfelldar umbætur í húsnæðismálum og byggðar yrðu 1250 íbúðir á næstu 5 árum. Íbúðir í Breiðholti urðu alls um það bil 7600 og því var stór hluti íbúða hverfisins byggður fyrir tilstilli samkomulagsins. Með uppbyggingu Breiðholtshverfisins náðist að útbrýma braggahverfum í Reykjavík og tryggja tekjulágu fólki öruggt húsnæði.
6 comments
Heimi Má sem ríkissáttasemjara plís end þeink jú

https://is.m.wikipedia.org/wiki/Brei%C3%B0holt
Hljómar klúrt 😏
Vá sólveig er með 50% parry og Halldór er með 75% dodge.