Verkbann hefur mun meiri áhrif á bensínstöðvar en verkfall – RÚV.is

4 comments
  1. Efling hefur 3 valkosti sýnist mér.

    1. Skrifa undir tilboðið.

    2. Neita að skrifa undir og neita að greiða félagsmönnum sínum og valda þeim miklu meiri skaða en að skrifa undir lélega dílinn sem efling vill ekki skrifa undir.

    3. Neita að skrifa undir og tæma verkfallsjóðinn á tæpri viku með því að greiða launin fyrir félagsmenn og þar með steingelda félagið í næstu viðræðum og jafnvel lengur.

    Svona kremur maður verkalýðinn.

  2. Af hverju eru allir að láta eins og SA finnist frábært að það verði verkbann? Fyrir mér virðist það augljóst að ætlunin sé að annað hvort hóta þessu og vonast eftir því að Efling semji út af hótuninni einni og sé, eða láta það byrja með sömu afleiðingum að Efling semji. Það liggur held ég alveg fyrir að verkbönnin myndu ekki vera lengi í gildi þar sem að starfsmenn geta ekki verið launalausir lengi svo að þrýstingurinn á að semja væri gríðarlegur. Allt þetta er held ég til að koma í veg fyrir að núyfirstandandi verkföll olíubílstjóra og ræstingarfólks geti ekki ílengst.

    Að sjálfsögðu veldur verkbann meiri skaða per dag heldur en verkföllin sem nú eru í gangi. Það er samt engin hræsni í því fólgin fyrir atvinnurekendur að vilja verkbannið, þar sem að verkbann (eða jafnvel bara hótun um verkbann) mun líklega stytta gildistíma verkfallanna.

  3. Spurði að þessu í öðrum þræði, en mér dettur í hug að spyrja hér, svona fyrst ég hef ekki fengið neitt svarl:

    Hver er lendingin þá, ef verkbann er óásættanlegt?.

    Við búum við eftirfarandi raunveruleika (held ég, segðu mér ef það er rangt):

    * Skæruverkföll eru þannig gerð að þau kosta stéttarfélag nær ekkert.
    * Ríkið bannar öðrum að ganga í verk þeirra sem eru í verkfalli.
    * Ákveðnar stéttir eru svo nálægt slagæðum samofna hagkerfisins að allt stoppar ef þær vinna ekki vinnuna sína.

    Allt þetta endar með að stéttarfélag sem er með fólk innanborðs í lykilstöðum getur stoppað allt hagkerfið með hverfandi kostnaði fyrir þau sjálf. Það eru þrjár lendingar hér:

    * Þessi stéttarfélög geta ákveðið launin sín sjálf. Það er hreinlega ekki hægt að gera annað en að gangast við hvaða kröfum sem þau leggja fram.
    * Verkbann lætur stéttarfélagið bera einhvern kostnað af þessum gjörðum.
    * Ríkið setur lög á skæruverkföllin sem eru af þessum meiði.

    Er einhver fjórði kostur? Eða aðhyllist þið einn af þessum þremur sem ég útlista?

    Hið opinbera má td ekki setja verkbann, en það er líka bannað að fara í skæruverkföll í samningum við hið opinbera.

Leave a Reply