Út­borgun kaupenda fyrstu fasteigna gæti horfið

11 comments
  1. Fólk þarf virkilega að passa sig áður en það tekur verðtryggð lán. Verðtryggingin er ekkert annað en afleiðusamningur, flókinn samningur sem á ekki að ota að ungu fólki. Kynslóð eftir kynslóð hefur brennt sig á verðtryggingunni.

  2. Fasteignamarkaðurinn er gjörsamlega hörmulegur. Unga fólkið er fucked. Ástandið verður bara verra og verra með hverju árinu.

  3. 1/3 fullorðinna á Íslandi hafa aldrei átt fasteign og þetta bendir til þess að sá hópur stækki bara.

    Held að það verði að fara að skoða hvernig leigumarkaðurinn á að vera þar sem að það búsetuform er að fara að stefna í að vera ráðandi og það er bara eins og villta vestrið að vera leigjandi í dag. Fólk er virðist vera í sumum tilvikum að borga 2/3 af laununum sínum í leigu miðað við miðgildislaun og meðalleiguverð á höfuðborgarsvæðinu. Sem að er bara geðveiki, erlendis er miðað við að húsnæðiskostnaður eigi ekki að vera meiri en 30% og Seðlabankinn er með hámarksafborganir sem 35% af ráðstöfunartekjum.

  4. Fáranleg uppsetning. Húsnæði er aldrei að fara lækka um 8%. Jafnvel þótt það myndi gerast þá væri það til skamms tíma, fasteignaverð til langs tíma hefur alltaf bara hækkað.

  5. Það er virklega búið að læsa okkur inní algjört helvíti á fasteignamarkaði.

    * Of lítið byggt
    * Alltof margir innflytjendur (ekki flóttafólk) þannig að það er alltaf umframeftirspurn á leigumarkaði

    En afhverju ætti að laga þetta? Hverjir eru hvatarnir og fyrir hverja?

    * Ríkið og sveitarfélög: Ef það er byggt uppí eftirspurnina og umfram hana mun fasteignmatið lækka með lækkun á markaðinum sjálfum? Verður það mikil að fasteignagjöld lækka? Uppbygging innviða er dýr og dregur mjög á t.d. hitaveitu eins og við höfum öll tekið eftir að hún er hætt að anna eftirspurn á álagstímum (lokun sundlauga)
    * Seðlabankinn: Fleiri íbúðir = fleiri lán = meira peningamagn í umferð = kaupmátta rýrnun

    Við Íslendingar erum búnir að byggja upp t.d. ferðaþjónustu sem er orðinn miklu stærri en við getum mannað. Þar sem fólk í ferðaþjónustunni er 80%? 90%? innflutt starfsafl.

    Bankanir gleymdu sér í gleðinni og opnuðu fyrir uppbyggingu hótela allstaðar þar sem það á alltaf að koma fleiri og fleiri ferðamenn. Hefðu ferkar átt að sprengja hótelin sem voru fyrir 2x áður en frekari uppbygging færi í gang. Það er allt í lagi að geta ekki tekið á móti öllum.

    Flott byrjun væri að kaupa upp svona 50% af hótelum og breyta þeim í hæródýrar leiguíbúðir fyrir fólk undir 35 ára þar sem fók gefst svo tækifæri að kaupa eftir x langan tíma. Eftirspurnin eftir hræódýru starfsfólki frá austur evrópu hverfur og losar upp stórt pláss á leigumarkaði.

    En ferðaþjónustan og gjaldeyristekjurnar? Myndi telja að hún myndi auka gjaldeyrirstekjurnar. Hættum að fá ferðmenn sem versla allt í bónus og leigja ódýrasta Kúkú bílinn og fáum í staðinn ferðmenn sem eyða 10x meira á hvern.

    Mín 5cent sem þurfa ekki að endurspegla mat þjóðarinnar

  6. Fasteigna og lánamarkaðurinn á Íslandi er bara kjaftæði og jaðrar við vistarband.

    Ég keypti mína fyrstu íbúð fyrir 3 árum, ég borga ekki krónu umfram það sem um var samið við lánastofnunina, höfuðstóllinn er strax farinn að lækka og samkvæmt greiðsluplaninu munu afborganirnar mínar lækka hægt og rólega með árunum.

    Ég bý innan Evrópusambandsins og fólk hreinlega trúir mér ekki þegar ég segi frá lánakjörum á Íslandi

  7. Fasteignamarkaðurinn er í henglum af því að yfirvöld gera ekkert. Seðlabankinn er að hækka stýrivexti til að kæla markaðinn sem er að virka. En þegar það eru leigufélög sem eiga yfir 1000 íbúðir þá er það nokkuð augljóst að meðal maðurinn á ekki séns og leigufélögin munu kaupa allt.
    Það þarf bara að setja miklar skattlagningu á leigutekjur ef einstaklingur eða leigufélög eiga margar eignir.
    2 eignir í leigu. Mætti vera 22% skattur af leigutekjum. er núna 11%.
    3 eignir í leigu 30 %
    4 eignir 40%
    5 eignir 50%
    10 eignir 70%
    Meira en 30 eignir 80% skatt

  8. Við þurfum að fá Breiðholt Part II: The electric boogaloo.

    16.000 íbúðir innan höfuðborgarsvæðisins, helst nær Mosfellsbæ eða gera annað nýtt hverfi í Árbæ.

Leave a Reply