Er ég einn um það að finnast að nútíma þingmenn eru ekkert annað en andlitslaus sæti sem hafa ekkert að segja. Það er eins og það sé enginn kjarkur hjá 90 prósent af þessu liði til að tjá sig í fjölmiðlum eða á samfélagsmiðlum. Hvar er þetta lið? Halló er einhver heima????

10 comments
  1. Hvaða skoðanir vilt þú að þau komi á framfæri?

    Helsta verkefni Alþingis er að setja lög. Þetta eru ekki lýsendur í fótboltaleik.

  2. Skrítið teik. Það er ekki þverfótað í fjölmiðlum fyrir þingmönnum. Ertu að tala um eitthvað sérstakt málefni?

  3. Fækka opinberum starfsmönnum utan mikilvægra þjónustastarfa og byrja á þessum hóp til að sýna gott fordæmi.

  4. Alþingismenn koma bara fram í fjölmiðlum fyrir kosningar og lofa öllu fögru. Atvinnu pólitíkusar sem vilja bara komast í þægilegt starf með áskrift að launum sínum og þurfa bara kjósa með því sem formaður þeirra segir þeim að kjósa með.

  5. Sigmundur Davíð býr sannarlega yfir kjarki til þess að hafa skoðannir og láta þær í ljós.

    Brynjar Níelsson, Þórhildur Sunna, Jón Gunnarsson, Inga Sæland, Ásmundur Einar, Björn Leví, Helga Vala, Arn­dís Anna, o.s.frv. Allt þingmenn sem hafa skoðannir og láta þær í ljós, bæði í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum.

    En jújú, það er oft sem ég sé nafn alþingismanns og ég fatta að ég hef aldrei heyrt nafn né séð andlit þessarar manneskju áður.

  6. Að mínu mati er alls ekkert æskilegt að þingmenn séu einhverjir athyglisfíklar með “hot take” í fjölmiðlum annan hvern dag.

    Ég vil frekar bara fá hæft fólk sem heldur kjafti og kemur hlutum í verk. Mundu, Alþingi er í grunninn bara “board of directors” fyrir Ísland hf.

    Einstaka sinnum koma upp mál sem almenningur ætti að hafa sitt að segja um, en almennt séð, þá kusum við þetta fólk því við treystum því og þeirra stjórnarháttum til þess að reka landið; er ekki bara best að leyfa þeim að gera það?

  7. Helminga á alþingi og setja á persónukjör sem væri meira bundið gömlu sýslunum enn þessum kjör-umdæmum.
    Láta svo hvern og einn alþingismann fá aðstoðarmann og hafa 85% skyldumætingu á ALLT ekki bara kosningar um mál.
    Setja svo hámarks þing setu í 4 kjörtímabil.
    Og veita forsetanum meiri völd

Leave a Reply