Samkvæmt fréttinni eru meðallaun þerna á þessum hótelum 572.000kr. A mánuði hjá Berjaya og 514.000kr. A Íslandshótelum. Þessar tölur eru miðað við 170-178.5 klst á viku, með einhverri helgarvinnu á viðeigandi álagsgreiðslum.

Hvað finnst fólki vera “mannsæmandi laun” fyrir þessi störf?

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2023-02-25-medallaun-514-thusund-og-572-thusund-fyrir-skatt

17 comments
  1. Ég hef séð launaseðla frá ræstingarmanneskju sem vann hjá Islandshotelum og það var ekkert í nágrenni við þessa tölu. Bara rugl

  2. Meðallaun er eitthvað sem er ekki hægt að miða við í vaktavinnu. Hversu mikil yfirvinna er innifalinn, hvaða álag, helgidagar og helgar osfrv.

    Grunnlaun er eini fastinn.

  3. Miðað við þessar tölur þá fengi manneskja sem fær 572 þúsund krónur í heildarlaun útborgað 421 þúsund.
    122 þúsund fara í skatt.
    23 þúsund fara í lífeyrissjóð.
    5720 krónur fara í félagsgjöld.

    Tók ekki orlofið með í reikninginn. Viðkomandi er að fá 380 þúsund væntanlega ef orlofið er greitt. Þ.e.a.s. að orlofið er sett á sér reikning.

    Ef hótelin nota sama hátt og flestir ferðaþjónustuaðilar þá fer orlofið í “launaðan frídag”. Eitthvað sem hverfur yfirleitt ofan í vasa launagreiðanda við starfslok.

  4. Í öllum vinnudeilum koma atvinnurekendur fram með svona uppblásnar tölur.
    Fólk þarf að fatta að fólk einsog Jóhannes er ráðið á ofurlaunum til þess eins að blekkja og afvegaleiða umræðuna.

  5. Eins og alltaf þegar tekin eru dæmi um laun vaktavinnustéttar í kjarabaráttu talar talsmaður atvinnurekenda bara um laun með vaktaálagi. Þetta er svo sjúklega óheiðarlegt.

  6. Það er svo magnað að umræðan eigi að vera hvað er nóg til að við getum stimplað upphæðina “mannsæmandi”

    Mannsæmandi er mjög teygjanlegt hugtak.

    Forstjóri olís með 19 millur á mánuði í hauldarlaunatjöld telur ekki mannsæmandi að fá bara 5 milljónir á mánuði.

    Innflytjandi á lagmarkstaxta sem sendir 80þ heim til fjölskyldu sinnar er kannski bara ánægður í herbergi sínu í blokkarkjallara eða í iðnaðarhverfi þar sem hann deilir klósetti með 15 öðrum.

    Þetta fólk er það eina í landinu sem þarf alltaf að svara fyrir hvort laun þeirra fyrir sína vinnu sé “mannsæmandi” eða verðbolguhvetjandi.

    Afar sjaldan þurfa fyrirtæki að svara því hvort taxtar þeirra séu mannsæmandi eða launabil á milli hæst launaðasta og lægst launaðasta sé mannsæmandi. Ef þau greiða umsamda taxta þá er það nóg.

    Því hærri laun því minna þarftu að svara fyrir þau og bara gert ráð fyrir að þú sért þess virði fyrir utan nokkra kommúnista á internetinu sem kvarta.

    En ef þú ert bókstaflega á botninum þá þarftu að færa rök fyrir því að kjarabætur þínar eigi rétt á sér því þær koma launum þínum upp í mannsæmandi laun.

    Hversu brengluð er þessi umræða eiginlega?

  7. Hver hér inni hefur logið því að sér að þeir gætu lifað góðu lífi af því að vinna 08 til 16 virka daga??

    Í fokking alvöru

  8. Meðallaun og útreikningur þeirra skemmast alltaf um leið og þú telur laun yfirmanna og stjórnendur með í því

    service desk starfsmaður vs. hótelstjóra er gígantískur

    prufum að reikna mismuninn heldur en meðallaunin hjá þeim og þá sjáum við hvar vandinn liggur

  9. Edit:
    Tók til baka fyrri hluta comments

    Annars eru þetta hrikalega léleg heildarlaun fyrir vaktavinnu með yfirvinnu. Cost of living hérna á skerinu er svo hrikalega hár þannig að svona laun duga fólki skammt.

  10. ATH

    Nú hef ég setið undir áróðri atvinnurekenda gegn launahækkunum.

    Ég ætla ekki að nefna hvaðan bara útaf lítill heimur. En hópurinn sem um ræðir var talinn frekur og ósanngjarn, og fjölmiðlar hikuðu ekki við að birta “meðallaunatölur” hópsins.

    Nema þá að það sem fjölmiðlar telja meðallaun voru hæsta mögulega sem starfsmaður með hæstu reynslu gat unnið sér inn á mánuði, m.t.t. hvíldar milli vakta og svo allar hagstæðustu vaktirnar.

    Hæsta mögulega fræðilega upphæðin hjá hæst launaða starfsmanninum (í engum takti við raunverulega vinnuiðkun og meðaltaxta) var talið, með fullvissu, sem meðallaun meðalstarfsmanns.

    Svo. Af eigin reynslu tek ég allar svona fréttir með gát og mæli með að fleiri geri það líka. Tölurnar eru samviskulaust uppblásnar.

  11. Greinin sem þú vitnar í talar líka um það að grunntaxtinn er 370þús þannig að þetta er töluverð yfirvinna til að fá þessi meðallaun sem er kanski fínt fyrir suma en gerir ekki mikið fyrir jafnvægi lífs og vinnu.

Leave a Reply