Ef það yrði gengið til Alþingiskosninga í dag, hvaða flokk myndirðu kjósa? Og hvers vegna?

29 comments
  1. Pírata.

    Mér finnst gott að hafa varðhunda lögræðis, gagnsæis og aga á Alþingi til að gelta á aðra flokka. Veitir ekki af.

  2. Líklegast samfylkinguna.

    Kristrún hefur verið flott í umræðunni, og ég held(vona) að hún verði eins öflug ef hún kemst í ríkisstjórnina.

  3. Samfylkinguna.

    Það er staður og stund fyrir alla flokka. Núna er komið að samfylkingunni að leiða okkur í átt meiri jöfnuði. Kristrún fær mitt traust þangað til annað kemur í ljós

  4. Einhvern flokk sem er til í að sýna ábyrgð í ríkisfjármálum. Mér finnst enginn flokkur trúverðuglegur hvað það varðar eins og staðan er núna. Myndi líklega skila auðu.

  5. Ekki Pírata.

    Ég er sammála skoðunum þeirra um gagnsæi. En mér finnst þeir hafa alveg misst fókusinn síðustu misserin.

  6. Allavega ekki núverandi ríkisstjórnarflokka.

    Samt ekkert þannig séð úrval góðra kosta eftir þá.

    Færi sjálfsagt mest eftir frambjóðendum í mínu kjördæmi.

  7. Það mun ekki verða nein umbóta ríkisstjórn sem mun gefa íhaldinu/kyrrstöðu stjórninni frí nema að Samfylkingin nái flugi. Samfó er eini flokkurinn sem hægt væri að mynda stjórn í kringum og þá þarf Samfó allavega að vera jafn stór og Sjálfstæðisflokkurinn.

    Myndi helst vilja sjá stjórn sem inniheldur XS, XC og XP.

  8. Ég persónulega legg mikið upp úr gagnsæi, breytingum á stjórnkerfinu, betri stjórnsýslu, beinna lýðræði, breytingum á kvótakerfinu og helst innleiðingu nýrrar stjórnarskrár, og aðgerðir til að bregðast við loftslagsbreytingum. Og bara, almennt að vinna gegn þessari endalausu einkavinavæðingu og sjálftöku.

    Þess vegna eru Píratar augljóst val í mínum augum.

    En, stóra markmiðið fyrir mér er að fá í raun hvaða ríkisstjórn sem er sem ekki inniheldur Sjálfstæðisflokkinn (eða Miðflokkinn)

  9. Ég hef misst alla trú á stjórnmálaflokkunum. Venjulega finn ég mig hægra megin við línuna, en kaus VG seinast í von um aukið fjármagn í heilbrigðiskerfið. Í staðinn er Kata Jak orðið enn eitt peðið hans Bjarna og ekkert breytist.

  10. Pírata, því ég held að það sé minnst spillti flokkurinn. Stefnur flokka skipta litlu máli ef ekki er hægt að treysta neinu sem frá þeim kemur.

  11. Viðreisn vegna þess að þau hafa verið áberandi í umræðunni um að rétta hallarekstur ríkisins, aðgengi að sálfræðiþjónustu og alls konar frelsismál sem heilla mig.

  12. Því upplýstari sem ég verð um þessi mál, því minna langar mig að kjósa alla flokkana. Myndi kjósa gervigreindar- og vísindaflokkinn. Enginn fengi að vera oddviti nema að hann hefði menntun sem nytist í ráðherrastól. Enga fleiri íslenskufræðinga eða tónlistarmenn í heilbrigðisráðherrastólinn, takk.

    **Sósíalistaflokkurinn:** Gunnar Smári; ’nuff said. Guð hjálpi okkur.

    **Píratar:** Einblína alltof mikið á innflytjendamál. Innviði landsins þarf miklu meiri uppbyggingu áður en við þolum þennan fjölda sem við erum að taka við. Annars er ég ánægður með ýmislegt sem þeir gera. Fínir í stjórnarandstöðu en myndi ekki vilja þá í stjórn.

    **Sjálfstæðisflokkurinn:** Hættið að selja innviði sem mala gull. Báknið stækkar bara, þrátt fyrir loforð.

    **Samfylkingin:** Reksturinn á Reykjavíkurborg er disaster. Ekki búinn að fyrirgefa hvernig þeir seldu 15.000 heimili niður ánna eftir hrunið þrátt fyrir að vera ‘jafnaðarmannaflokkur’. Kristrún er prospect, restin er so-so.

    **Viðreisn:** Fannst Viðreisn ágætur flokkur en þau eru búin að missa alla góða frambjóðendur og eru voða stefnulaus þessa dagana.

    **VG:** Hafa gefið alltof mikið eftir í þessu stjórnarsamstarfi. Virði það að ákveðnu leyti en það er ekki það sem fólk kaus.

    **Framsókn:** Gerir framsókn eitthvað fyrir utan að segjast vera miðjuflokkur í kosningum til að hirða atkvæði óákveðinna? Án djóks? Eina frumvarpið frá þeim sem ég hef orðið var við er eitthvað boomer frumvarp um að það þurfi 2 ára fangelsisdóm ef þú keyrir fullur heim á rafskútu. Þetta ætti að vera jobs flokkurinn. Jobs, jobs, jobs! Af hverju er enginn jobs flokkur á íslandi?

    **Flokkur Fólksins:** Berjast fyrir þeim hópum samfélagsins sem öllum er sama um. That’s somethin’.

  13. Ég er frekar félagslega íhaldssamur að eðli, en hef kosið pírata í mörg ár þar sem ég tel hann eina flokkinn sem tæklar það sem mér þykir vera helsta vandamálið hér á landi — spilling.

    Ég er reglulega við það að gefast upp á þeim þar sem ég þoli mjög illa margt við heimssýn þeirra, stefnu og framkomu, en á meðan þeir halda áfram að veita spillingu aðhald umfram aðra flokka, þá hafa þeir mitt atkvæði.

    Mér lýst mjög vel á Kristrúnu, en ég get því miður ekki kosið hana þar sem flokkurinn hennar aðhyllist inngöngu í evrópusambandið. Ef hennar flokkur myndi falla frá því, þá myndi ég kjósa þann flokk sem Kristrún leiðir.

  14. Kann vel við Kristrúnu Frosta en Jóhann Páll sem er með henni í flokk fer óheyrilega mikið í taugarnar á mér svo ég gæti ekki kosið Samfylkinguna.

    Það eru heldur takmarkaðir möguleikir í framhaldi af því sem ég ætla ekki að gefa upp.

  15. Bara enhvern helvítis flokk sem ekki axlar alltaf af sér ábyrgð og segir hluti eins og…

    “*Það er ekki á ábyrgð stjórnvalda að gera xyz*” eða…

    “*Æi, þetta var óheppilegt og við þurfum að læra af þessu*”

    Efa að sá flokkur sé til.

  16. Samfylkinguna. Er á því að stærsta vandamál vinstri ássins sé sundrung, og að það vanti sterkan vinstri-regnhlífaflokk sem getur verið sjálfstæðisflokkur vinstrisins. VG hefur ekki heillað mig neitt stórkostlega í þessari ríkisstjórn, þannig ég held að ef ég þyrfti að velja myndi ég setja hesta mína við Samfylkinguna. Hef hoppað milli Pírata og xS annars

  17. Pírata því að þeir munu ekki mynda stjórn með Sjálfstæðisflokknum og koma þeim til valda, að vísu sósíalistaflokkurinn líka en ég er á móti sósíalísku hagkerfi og að allt sé ríkisrekið, ég heillast af blönduðu kerfi sem virkar fyrir venjulegt fólk og fyrirtæki.

Leave a Reply