Lenya Rún segir Suður­landið biblíu­belti Ís­lands

12 comments
  1. Þarna beit Lenya á agnið…

    *Og fólk sem við höfum hitt á förnum vegi segir að frumvarpið sé ómannúðlegt og grimmilegt, þýðir það að ég hef rétt fyrir mér?*

    Nafnlaust fólk sem ég ræddi við er alltaf sammála mínum málstað, svona eins og fólkið sem spyr prestinn sinn svo hentugra spurninga sem hann getur svarað í messu á sunnudeginum.

  2. Þetta á kanski við um Hornfirðinga og aðra en ekki staði eins go Selfoss.

    Suðurlandskjördæmi er svo asnalega stórt kjördæmi.

  3. Óháð því hvort þetta sé “biblíubelti” eða ekki hvað meinar hún með þessu?

    Eru skoðanir fólks metnar út frá trúarbrögðum þeirra?

  4. Kristna liðið er allt meðfram ströndum landsins þar sem að beðið var fyrir því að sjómenn kæmu aftur heim. En í innsveitum eins og td. Árnessýslu og í Þingeyjarsveit var alltaf mikið meiri trú á tröll og álfa en tíðkaðist við Höfn eða Vestmannaeyjar.

  5. Ég vona svo sannarlega að þessi kona sé bara kjáni en ekki heimskingi eins og þessu ummæli gefa til kynna. Flest allt sem þessi hefur notið góðs af t.d svo til ókeypis háskólamenntun eða embættismannakerfi sem ríður feitum hesti var byggt upp af harðduglegum bíblíuunendum.

  6. Mér finnst alveg óþarfi og gjörsamlega tilgangslaust að draga þetta hugtak hingað. Það hlýtur að vera hægt að tala um þetta á gáfulegri máta

  7. Jæja þá vita þeir á suðurlandi að píratar telja þá hálfvita og ég sem hélt að píratar dæmdu ekki fólk eftir því hvaðan það kæmi, býst við það gildi bara um suma hópa.

  8. Þetta er ekki gagnlegt leið til að eiga í samtali um og við íslendinga. Búsetu-ismi er á engan hátt til þess fallinn að prómótera góða pólitík.

Leave a Reply