Ný miðlunartillaga milli Eflingar og SA komin fram og öllum verkföllum og verkbönnum frestað frá hádegi í dag. Kosið frá föstudegi til miðvikudags

6 comments
  1. Klukkan hvað koma hin stéttafélögin fram, tala um forsendubrest og krefjast nýs samnings?

  2. > Í miðlunartillögunni er gert ráð fyrir að launahækkanir Eflingar verði þær sömu og í SGS-samningnum svokölluðu. Gert er ráð fyrir fullri afturvirkni aftur til 1. nóvember síðastliðinn. Í tillögunni er gert ráð fyrir breytingu á starfsheiti fyrir almennt starfsfólk í gistihúsum og sömuleiðis breyting á launaflokki þeirra. Annars er efnislega um sama samkomulag að ræða og í SGS-samningnum.

    Úff…eftir alla þessa atburðarás þá finnum við okkur á sama stað.

  3. Sólveig Anna er algjörlega vanhæf til að leiða Eflingu. Hefur eytt gríðarlegum fjárhæðum úr sjóðum félagsmanna í verkföll, auglýsingar og ólögmætum uppsögnum. Og fyrir hvað? Skammtímasamning sem endar á því að taka nákvæmlega því sama og SGS samdi um. Hún ætti að sjá sóma sinn í því að segja af sér fyrir að valda félaginu og félagsmönnum ómældu tjóni.

  4. Ok þannig að þetta er sama tillaga og Aðalsteinn lagði til. Sem að var að uppistöðu sami samningur og SGS gerði…

    Öll þessi læti fyrir þetta?

    Það er ekki nokkur leið að þessi samningur verði felldur í atkvæðagreiðslum.

    Nokkuð ljóst að þetta var ekki rétti tíminn til að fara í harðar aðgerðir til að fá betri kjör og að Efling bara vissi ekkert hvað þau voru að gera og fóru í átök bara til að fara í átök. Og verkbanns útspilið kom þeim algjörlega í opna skjöldu.

  5. Verkbannið virðist hafa slegið öll vopn úr höndunum á Eflingu. Það er erfitt að skilja öðruvísi en að Efling hafi vanmetið SA eða hversu harða baráttu þeir myndu etja.

    Ef raunin er sú að ekkert stendur eftir baráttu Eflingar síðustu mánuði annað en samningur sem er í stærstum dráttum sá sami og bauðst frá byrjun þá hlýtur arkitekt þeirrar baráttu að taka ábyrgð á því.

Leave a Reply