
Nú á ég bíl og þykir mjög vænt um hann. En hinsvegar langar mig oft að skilja hann eftir heima og taka strætó þar sem strætó gengur mjög greiðilega frá heimili mínu og áfangastað.
Eini þröskuldurinn fyrir því að ég taki Strætó er Klappið, ég nenni ekki að bæta meira veseni í líf mitt og díla við að það virki ekki.
Ég sá í fréttunum um að Sjálfstæðisflokkurinn bað borgarstjórnina um að gera óháða úttekt á Klappinu(https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/02/11/segir_borgina_i_afneitun_um_klapp/), en það var fellt niður. Þótt að Klappið sé óumdeilanlega hataðasta app landsins.
Borgin er líka í svo mikillri mótsögn við sjálfan sig, að segja einkabílnum stríð á hendur og þrengja allar götur og minnka hámarkshraða, en bjóða svo ekki uppá neitt í staðinn. Er til meiri hálfvitaskapur?
Hvernig væri samt að ef að Strætó og sveitarfélögin myndu bara kyngja stoltinu og viðurkenna að Klappið sé eitt stórt fíaskó, og finna eitthvað annað?
9 comments
Það þarf alla vega einhver að skoða af hverju þetta drasl forrit var látið taka við perfectly fine appi.
Eða bara hætta alveg með app?
Það er svo mikið tap af þessu hvort sem er, frekar bara committa á að hafa þetta bara frítt og virkilega ná upp notkuninni (og meðfylgjandi fækkun bíla vonandi).
Held að það sé haugur af fólki sem er að rembast við að halda úti bíl af vanefnum sem myndi mögulega sleppa því ef það er enginn kostnaður eða appvesen við að taka bara strætó.
Sjálfstæðismenn reyna að velta ákvörðun sem tekin var af stjórn Strætó yfir á eina stjórnvaldið sem er ekki stýrt af sjálfstæðismönnum. Ekki fylgir með að sjálfstæðismenn hafi meirihluta í stjórninni og framkvæmdastjórinn er sjalli.
Í ótengdum fréttum heldur leitin að heiðarlegum sjálfstæðimanni áfram þó enginn slíkur hafi fundist frá því að flokkurinn var stofnaður.
Hvað er að Oyster card lausn? Svona í alvöru, það er til fólk sem hefur ekki áhuga á að eiga snjallsíma.
Eða rafmagnslausann síma.
N1 er komið með þetta líka til að borga fyrir hleðslu, þú verður að nota app til að borga.
Óþolandi alveg stundum
Eitt af stóru vandamálunum við Strætó er rekstrar formið, þú ert með einhverja pólítiskt ráðna stjórnendur í fyrirtæki sem er að reynað skapa gróða í staðinn fyrir virði fyrir samfélagið.
Þá færðu stjórnendur sem vilja fara í stór og áhættusöm verkefni því ef þau heppnast vel lítur það rosalega vel út fyrir þá og þeir eru með nýja orðu á ferilskránni enn ef það misheppnast þá fer fyrirtækið ekki á hausinn heldur taka skattgreiðendur það bara á sig í staðinn fyrir að þeir missi vinnuna.
Þetta verður til þess að fyrirtækið getur aldrei raunverulega þróast til hins betra því það er enginn kvati til þess að taka litlu einföldu skrefin sem þarf til langvarandi breytinga.
*Borgin er líka í svo mikillri mótsögn við sjálfan sig, að segja einkabílnum stríð á hendur*
Æjj þegiðu… þetta er í fyrsta skipti síðan borgin byggðist sem einkabillinn er ekki í algjörum forgangi þegar kemur að samgöngum. Þetta tal um stríð gegn einkabilnum er bara frekja.
En ég trúi alveg að strætó sé með glatað app. Hef ekki notað þetta klapp sjálfur samt.
Reykjavíkurborg er kannski með þessa stefnu en því miður hefur borgin sama atkvæðisrétt í stjórn Strætó og öll hin sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu þrátt fyrir að spanna langmest flatarmál þjónustusvæðisins. Öll hin sveitarfélögin eru meira eða minna rekin af Sjálfstæðismönnum sem sjá engan tilgang í þessari þjónustu.
Gallinn við strætó finnst mér vera að það virðist alltaf þurfa að finna upp hjólið. Tæknilausnir swm botaðar eru í útlöndum eru afgreiddar sem ómögulegar út af lopnum og óskýrum tæknilegum vandamálum.
Eða prófa það sama aftur og aftur. ..
Það er löngu tímabært að það verði bara frítt í strætó á öllu höfuðborgarsvæðinu, Það þarf að fjárfesta í einstaklingum og fá gróða til baka fyrir samfélagið.