Það kæmi mér ekki á óvart þó Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra birtist í fréttum á næstu dögum búinn að ákveða að það skyldi verða stofnaður her á Íslandi.
allgert rugl, fyrir hvað þyrftum við her og hvar ætlum við að fá fjármagnið. við höfum einga óvinni
Við getum alltaf reddað nató hingað ef við þurfum nató… Við höfum geggjaða staðsetningu og rándýrt fermetraverð…
Nei
Fokk. Off.
Þetta minnir svo vel á fyrsta atriðið úr Áramótaskaupinu 2003:
Ísland hefur verið kallað hið fullkomna svæði fyrir stríðsátök og um leið mikilvægt svæði landfræðilega.
Það má vera í afneitun, það er samt betra að geta varið sig og tapa í staðinn að bjóða hættunni heim. Minnsta kosti þá getum við sagt að við reyndum….
Fyndið hvað íslendingar ætlast alltaf til að þegnar annara landa beri ábyrgð á vörnum landsins okkar og við leggjum ekkert til. Auðvitað eigum við að hafa lítinn her eins og lönd í okkar stærðarflokki, t.d Malta og Lúxemborg með aðild að NATO. Þá allavega lítur út fyrir að við tökum hlutverk okkar alvarlega.
Ég hef ekki lesið þessa bók og veit ekkert hvernig hann vill útfæra þetta, en ég vil benda á nokkur atriði og er alveg sammála því að við höfum pælt allt of lítið í þessum málaflokki. Það er bara ekki í boði að benda á NATO og varnarsamninginn um leið og varnarmál koma upp og stimplað okkur út endalaust, jafnvel með áframhaldandi herleysi.
Við getum ekki heldur falið okkur á bak við herleysisprinsipp og verið stolt af herleysi okkar svo lengi sem við erum NATO meðlimir, þá viljum við í raun bara að aðrar þjóðir sendi ungt fólk til að deyja fyrir okkur en ekki okkar eigið ungt fólk. Það er ekkert til að vera stolt af.
[Áhyggjur hans af óvæntri árás eru þó ekki án fordæmis.](https://en.wikipedia.org/wiki/Operation_Kitona#Landing_in_Kitona) Það virðist vera algengt viðhorf að lítill her sé alveg jafn gagnlegur og enginn her, en það er strax mun erfiðara að ráðast á eyju með litlum her heldur en að ráðast á eyju með engum her. Í dag gæti eitt flutningaskip eða 2-3 farþegaflugvélar fullar af vopnuðum mönnum tekið yfir landið og fært óvinveittu ríki eitt stykki ósökkvandi flugmóðurskip og náttúrulegt virki á miðju Atlantshafi.
Um leið og nokkur hundruð gæjar með riffla og vélbyssur eru komnir við helstu hafnir og flugvelli + vegtálma við hringveginn þá gengur svona plan bara ekkert upp. Þá þarf heilan innrásarflota sem ekki er hægt að fela fyrir loftrýmisgæslu NATO og flugskeytunum þeirra.
Það er ekkert sem segir að VIÐ þurfum að sjá um þessar auknu varnir, gætum eflaust samið við aðrar NATO þjóðir. En eitt er víst að við þurfum að gera fleiri ráðstafanir og leggja meira í púkkið þó að það yrði ekki endilega í formi Íslensks hers.
Það þarf ekki her til að leggja rútum yfir flugbrautir og þannig neita óvinum um notkun flugvalla hérlendis. Það þarf ekki her til að sprengja brýr. Það þarf ekki her til að leggja tundurduflabelti í kringum hafninar okkar með leynilegum krókaleiðum fyrir vinveitt skip. Það þarf ekki her til að skipuleggja fjöldahjálparstöðvar, loftvarnarskýli og útbúa flóttaleiðir fyrir ríkisstjórnina.
Ég vil bara fyrst og fremst að við horfumst í augun við breytt ástand og plönum fyrir eitthvað sem er ekki lengur fjarstæðukennt.
Ég ég lánað ríkinu gamlan jeppa og ryðgaða loftbyssu. Svo er alveg troðfullt af létt-notuðum herbúningum í Kolaportið.
Að vissu leyti finnst mér það varhugavert að fullvalda þjóð sé algjörlega uppá aðra komna hvað varðar landvarnir, þótt það séu „vinir” okkar eins og stendur, en kostnaðurinn og vinnan við það að koma sér upp nútíma her væri gígantískur(og yrði stór kostnaðarliður hvert ár) og vinnan tæki líklegast einn eða tvo áratugi.
Væri ekki sniðugra að stækka landhelgisgæsluna? bæta við skipum og flugvélum,/þyrlum, það væri þá hægt að vopna þá betur ef tilefni er til staðar(það er sammt ekki til fjármagn til þess að reka hana þannig að varla finnst fjármagn til þess að koma á stofn her).
Ég sé allavega helst fyrir mér að það þyrfti að vera til staðar fælingarmáttur fyrir árásum af sjó eða úr lofti. kannski þá að fjárfesta í einhverskonar loftvarnarkerfi sem gæti skotið niður óvinsamar flugvélar eða flugskeyti? Þetta væri náttúrulega miklu flóknara í framkvæmd því það þyrfti að breyta þjálfun og strúktúr gæslunar.
Á landi værum við best sett með léttar og hraðar sveitir sem gætu stundað „spoiling attacks”(hvernig sem maður íslenskar það) svipað og það sem úkraínumenn gerðu fyrstu mánuði innrásar Rússa og hægt á framvindu innrásarliðs þangað til að bandamenn okkar mættu á svæðið, að koma okkur upp her sem gæti varið alla strandlengjuna er held ég ómögulegt miðað við íbúafjölda og fjármagn.
Væri þetta ekki eins og að mála skotmark á okkur?
Væri samt gaman að sjá hvaða klikkhaus þeir velja sem varnarmálaráðherra.
Ég næstum því vill það bara til að sjá myndböndin af íslenskum tindátadrengjum að æfa sig í alvöru byssuleik.
Get strax séð fyrir mér “Funniest Icelandic Army Fails!!” myndbandið á YT.
Geta tekið sólahringsæfingar í Heiðmörkini. Skyldu þeir týnast geta þeir beðið Sóldísi, 65 ára, um leiðbeiningar þegar hún á leið framhjá í morgungöngutúrnum sínum.
Ef sú staða kæmi upp að Noregur, Svíþjóð, Danmörk og Bretland væru tekin yfir af einhverjum óvini þá gætum við ekkert gert. Alveg sama hversu marga Íslendinga við myndum setja í her. Það myndi engu breyta. Okkar öryggi byggir númer eitt tvö og þrjú á því að nágrannalöndin okkar séu örugg, falli þau föllum við.
Þetta væri hrein og klár eyðsla á peningum.
Ég á eftir að lesa þessa bók, þannig ég veit ekki hvað hann er að spá, en mig grunar að hann sé ekki bókstaflega að tala fyrir því að við förum að vopna einhverja þúsund fótgönguliða, kenna þeim að ganga í takt og láta það gott heita. Samanlagður fjöldi hermanna NATO ríkjanna hleypur á nokkrum milljónum, þannig að þeim vantar ekkert nokkra Íslendinga til viðbótar.
En að því sögðu þá er ýmislegt annað sem íslenskur herafli gæti gert sem felur ekki í sér að beinlínis vopna fólk og senda það í fremstu víglínu. Íslenskir friðargæslumenn hafa t.d. sinnt störfum flugumferðarstjóra á flugvöllum í gömlu Júgóslavíu og í Afghanistan. Það gleymist t.a.m. oft að íslenskur flugumferðarstjóri var um tíma æðsti yfirmaðurinn á herstöð NATO á flugvellinum í Kabul. Það er að segja, hermenn frá öðrum NATO ríkjum heyrðu undir íslenska friðargæslumenn og tóku við skipunum frá þeim.
Fókusinn hjá mögulegum íslenskum her ætti að vera á að þjálfa fólk sem getur sinnt sérhæfðum störfum og verkefnum, s.s. flugumferðarstjórn, flugvirkja, verkfræðinga, lækna og sjúkraliða, tölvunarfræðinga, forritara, gagnasérfræðinga, o.s.frv.
Tvímælalaust JÁ bara koma þessu í gang sem fyrst.
Íslendingar virðast ekki átta sig á hvernig nato og herkænska virkar.
Við þurfum að hafa hersetulið sem vinnur sem undanfari fyrir NATO, því öll nato lönd þurfa að setjast við ræðuborðið og ákveða öll í sameinigu að hafa afskipti, og það tekur svo auðvitað tíma að safna saman öllum þessum herafla saman og sigla yfir. (í kosavo tók nato 20 daga að ákveða að hafa afskipti og svo 4 daga að koma herliði saman)
Íslenskur her þarf einungis að vera undir tvöþúsund mans í allra mest (varalið inifalið) og við þurfum ekkert stærðar hertól bara nokkra APC’s og Self propelled artillery og svo mobile air defence, allt þetta er norðlensk herkænskan svo þessi fáu tæki er hægt að fá frá svíum helst.
En fyrst og fremst þarf íslenskt herlið að vera til staðar til þess að meðstjórna nato herliðum, það þarf fólk sem þekkir landið, veðurfar og heimamen.
1000 manna herlið myndi ekki gera neitt annað en að skipuleggja mótspyrnu gegn hersetuliði.
Erum að tala um svipað plan þá og Sviss er með í rauninni. Fela vopn allstaðar og virkja alla landbúa í að stunda skæruhernað gegn þeim sem að ráðast inn í landið.
Allt í lagi concept, gera hugmyndina um að halda landinu að engu í huga þeirra sem að hefðu áhuga á að reyna að ráðast hér inn. Að ná að halda þeim uppteknum þangað til NATO bregst við og kemur okkur til bjargar.
En ég held að við séum ekki að fara að ná að fjármagna neitt slíkt. Getum varla haldið úti sómasamlegri Landhelgisgæslu né Lögreglu.
Er ekki búinn að lesa þessa bók enn ætla að gera það og er sammála honum. Varnarmál hafa alltaf verið vanrækt á Íslandi og hugarfar margra Íslending um hvernig við þurfum ekki að spá í þessu því Bandaríkin gera allt fyrir
okkur er barnarlegt.
Við gætum alveg eins látið Dani sjá um utanríkismálin okkar og einkafyrirtæki sjá um heilbrigðismál ef við myndum hugsa svona alltaf.
Hernaður er ekki eins og fyrir hundrað árum og maður kemst með upp að vissu marki vera með færri menn. Árásir eru líka öðruvísi, Finnland og Eistland er með sér “cyberwarfare”(vantar íslenskt orð) deildir.
Er ósammála sumum hérna sem halda að bein árás á Íslandi með hermönum sé líkleg, það er ekkert ríki nema Bandaríkin sem geta flutt her svona langar vegalengdir og Rússar geta það alls ekki.
Undirbúningur núna gæti borgað sig eftir hundrað ár. Bandaríkin og Rússland verða kannski ekki til þá. Það sem ég tel líklegra eru árásir á hafnir, flugvelli og álver(Ísland er næst stærsti álframleiðandi í evrópu) með kafbátum, skipum og flugvélum.
Og áður enn að einhver seigir að Ísland sé of lítið þá er Eistland sem er með ~~svipað stórt efnahagskerfi~~ er með mig minnir 40 þúsund manna her.
Efnahagskerfi Eistlands hefur stækkað hratt.
Við myndum ekki tefja neina heri í langan tíma ef kæmi til stríðs. Stór eyja miða við íbúa fjölda þyrftum að dreifa þeim alla landsfjórðunga því það væri ekki eins og þeir myndu tilkynna hvar þeir hygðust nema land.
Það er eitt veigamikið atriði sem enginn hérna hefur bent á. Við erum, miðað við höfðatölu, [12. vopnvæddasta ríki heims](https://en.wikipedia.org/wiki/Estimated_number_of_civilian_guns_per_capita_by_country) þegar kemur að skotvopnaeign almennings. Við eigum eitt skotvopn fyrir þriðja hvern mann, ámóta og Finnar. Sem er vel. Slíkt telur massíft kæmi til innrásar en væri ekki nærri eins áhrifaríkt ef ekki væri batterí á borð við her til að miðla málum.
Sá þetta í fréttum í gær og hugsaði, æjj greyið kallinn orðinn alveg sturlaður, ekki einu sinni Magga Friðriks er nógu klikkuð til að vera sammála þessari þvælu.
Mér brá því töluvert að sjá svörin á þessum þráð, fatta samt núna að ég hefði átt að vita betur miðað við allt byssurúnkið hérna
Eyða frekar peningum í að undirbúa okkur fyrir alvöru heimsfaraldur, eða tryggja það að við getum lifað af sjálfbært eftir að restin af heiminum hefur sprengt sig upp með kjarnorkusprengjum.
Ef þær aðstæður myndast að Rússar eru að lenda á Íslandi með hermenn þá eru nokkrir Íslenskir guttar ekki að fara bjarga okkur. Líka væru við þá ekki mætt í WW3 með yfirvofandi kjarnokuvetri?
Það að tryggja öryggi okkar með hríðskotabyssum og skriðdrekum er steinaldarmannahugsun.
22 comments

https://www.youtube.com/watch?v=AuIFt-l9Z4M