>Fólki er kannski bara vísað til heimilislæknis, þar sem það fær rangar upplýsingar og slaka þjónustu. Þeim er kannski bara sagt að borða minna og hreyfa sig meira. Það getur virkað eins og olía á eld þegar kemur að sjúkdómnum offitu.
Allt er reynt til þess að forðast smá persónulega ábyrgð. Hvílík vitleysa…
Líkamsvirðingarhreyfingin byrjaði á mjög góðum stað – Það er alveg hárrétt að það eru ofboðslega miklir fordómar á móti feitum, og það er raunverulega komið mjög illa fram við fólk sem er feitt. Það eru mjög margar sögur frá fólki sem var feitt en hefur tekist að grennast, þar sem þau tala um að viðhorfið og hjálpsemin sem þau fá frá fólki hafi allt í einu gjörbreyst.
Þetta er vandamál sem samfélagið þarf að díla við. Offita er heilsufarsbrestur, og það að koma illa fram við fólk sem þjáist af henni er fáránlegt. Það er heldur ekki á nokkurn hátt gagnlegt, þar sem léleg sjálfsmynd og skortur á sjálfstrausti gerir mun erfiðara að takast á við þetta vandamál.
En þessi angi hennar sem er kominn út í það að það sé bara ekki hægt að grennast, að það sé skaðlegt að reyna, og að það sé í raun ekkert óhollt að vera feitur er kominn út í rugl. Það er fátt sem læknisfræðin veita meira um en skaðsemi þess að vera í ofþyngd.
Það er alveg ferlega erfitt að grennast, sérstaklega ef maður er í mjög mikilli ofþyngd. Það tekur mjög langann tíma, og maður þarf að viðhalda aga og sjálfsstjórn árum saman. Og þegar að marklínunni er komið, þá þarf maður að viðhalda því svo árum skiptir.
En það er líka alveg ótrúlega einfalt, þó það sé erfitt. Við vitum nákvæmlega hvernig á að gera það. Vandinn við að komast út úr ofþyngd er ekki líkamlegur, hann er sálrænn.
Mér finnst frekar dubious að það sé verið að þrýsta upp á offeitt fólk drastískum inngripum eins og lyfjum (sem hafa mjög slæmar aukaverkanir) og jafnvel skurðaðgerðir til þess að díla við þetta. Þetta ætti að vera alveg seinasta örþrifaráð þegar hefðbundnar aðferðir hafa mistekist. Þessi lyf eru sérstaklega slæm hugmynd, vegna þess að það að komast í kjörþyngd tekur mörg ár, og eina leiðin til þess að viðhalda því er viðhorfs- venju- og jafnvel persónuleikabreyting. Lyf gera það ekki. Ætlum við bara að hafa alla feita á dýrum lyfjum sem hafa slæmar aukaverkanir til frambúðar?
edit: Ég tek það fram að mér finnst ekkert slæmt koma fram hjá þessari konu í þessari frétt. Allt sem hún segir er rétt – Það eru engin meðferðarúrræði í boði fyrir offeita nema e.t.v hjáveituaðgerðir og þessi nýju lyf. Þetta er sjúkdómur sem bregst mjög vel við meðferð, og það er ótrúlega furðulegt að það sé buið að tala um að þetta sé stærsta heilsufarsvandamál nútímans án þess að það hafi verið neitt markvisst gert í því að koma á meðferðarúrræðum fyrir fólk sem þjáist af þessu. Ef fólk í ofþyngd hefði aðgang að stuðningi, fræðslu og stuðningi í líkamsrækt, næringarfræðilega aðstoð osf þá væri það gríðarlega gagnlegt.
Fordómar og einelti í nafni heilsu. Ég elska hvað fólk er fokked í hausnum. Það er endalaust efni í komediur, þjóðfélagið.
Fat and proud. Sérstaklega þar sem það er góður séns að núna sé fyrsti og eini tíminn í sögu mannkyns. Þar sem allt er á boðstólum og nóg.
3 comments

Hef séð elliheimili. Id rather die early. 😉