Miðlunartillaga samþykkt

6 comments
  1. Frábært að fá lendingu í þetta mál.

    Búið auka ójöfnuð með því að verðlauna bílstjórana sérstaklega, sem er sérstaklega hlægilegt því það er ágætlega launuð karlastétt sem gengur þá þvert á allt gargið um óréttlæti gagnvart láglaunakonum.

    En ef markaðurinn getur réttlætt launin að þá er ekkert sem heitir óeðlilegt.

    EDIT: Virðist vera auðvelt að misskilja, það er Sólveig sem kvartar yfir ójöfnuði og að hún sé að berjast fyrir ‘láglaunakonurnar’, niðurstaðan er svo í engu samræmi við þær kvartanir, sem mér þykir hlægilegt.

    Vonandi er niðurstaðan að við hættum að tala um atvinnugreinar eftir kynjaskiptingu, sem skiptir engu máli, og tölum frekar um að krefjast launa í samræmi við hæfni, menntun og fleira. Kennarar ættu t.d. að krefjast mikið hærri launa, eða að lækka menntunarkröfurnar, óháð þeirri kynjaskiptingu sem þar finnst.

  2. Þau náðu töluverðum kjarabætum fyrir þau sem fóru í verkfall og smá oná SGS samninginn, sem er eins gott því þarna er lægst launaða fólkið sem á mjög erfitt um þessar mundir. Efling hefði getað barist ein áfram en hótun um verkbann og stuðningur stjórnvalda og sáttasemjara með SA veitti ekki á gott.

    ASÍ verður að standa í lappirnar og allir verkalýðsleiðtogar að standa saman gegn sameiginlegum andstæðing sínum í næstu viðræðum. Húsnæðiskerfið er *ucked, heilbrigðiskerfið að hrynja og verðbólgan og hækkun álagninga að bíta hart. Talandi ekki um stórfellt arðrán bankanna. Vaxtahækkanir þeirra eru varla byrjaðar. Þær munu koma inn að alvöru um haustið á næsta ári og þá er eins gott að góðir samningar hafi náðst fyrr það árið.

  3. Mér finnst eitthvað rosalega sorglegt við það að þetta var eitt stærsta mál í gangi á Íslandi í vikur og svo er bara 23% kosning í stéttarfélaginu um samninginn.

  4. SA hafa allt of mikið vald. Að geta sett verkbann à launafòlk à ekki að geta gerst. Það þarf að spỳta ì lòfana og gera verkalýðsfèlögin mun sterkari.

Leave a Reply