Er búin að sjá þessi skjáskot út um allt á fb

6 comments
  1. Nauðgunargagnrýnin er skiljanleg, en við þurfum að muna að maðurinn er saklaus uns sannaður sekur.

    Ég hef voða lítinn tíma fyrir gagnrýni þess eðlis að Egill sé vinsæll meðal unglingsdrengja og að það sé að ýta undir kvenfyrirlitningu.

  2. Batnandi mőnnum er best að lifa. Sorry. Ég ætla ekki að klæða mig í einhverja skikkju og joina einhverja herferð að manni sem á fjölskyldu og er ekki að gera neitt af sér.

    Það má segja ýmisslegt um hann og hans hegðun í gegnum tíðina. En maðurinn var fundinn saklaus í þessari nauðgunarkæru. Þar við situr. Annað er kannski gagnrýnisvert, en ekki eitthvað sem krefst þessarar herferðar sem Tanja virðist heltekin yfir.

  3. Nú er ég út úr lúppunni. Hver er þessi Tanja og hvað gerði Egill henni svo að hún fari í þessa herferð gegn honum?

  4. Úff þetta clout eltandi twitter lið….þau vilja ekki neinar lausnir heldur vera áfram reið og berja sér á brjóst! Eins og sést með því að Gísli réttir út friðarpálmann og hún slær á það.

    Best er að hundsa þetta lið og halda áfram með daginn sinn.

  5. Er ég sá eini sem hef áhyggjur af Gísla Marteini. Hann virðist vera í erfiðri stöðu með þessari Tönju.

  6. Mig langar að minna aðeins á það að “saklaus uns sekt er sönnuð” er lagalegt hugtak, ekki samfélagslegt.

    Það er gífurlega mikilvægt í réttarríki að afstaða ríkisins og opinberra aðila gagnvart einstaklingum sé sú að þeir séu saklausir uns sekt sé sönnuð, en einstaklingum er frjálst að hafa þær skoðanir sem þeir vilja á gjörðum annarra.
    Sönnunarbyrðin í nauðgunarmálum er þung og það getur verið nánast ómögulegt að sanna glæpinn fyllilega. Það þýðir ekki að nauðgarinn sé saklaus, heldur bara að hann sé saklaus gagnvart ríkinu og sætir ekki opinberri refsingu fyrir glæp sinn.

    Ef sonur/dóttir/bróðir/systir/frændi/frænka osfrv. kæmi til mín og segði að einhver hefði nauðgað sér þá er viðkomandi sannarlega saklaus uns sekt sé sönnuð fyrir dómstólum, en er það alls ekki í mínum augum.
    Það er líka svo súrt hvað margir virðast ekki sjá hvað nauðgunaryfirlýsingar eru véfengdar til síðasta dropa en ef einhver segir annan hafa lamið sig eða að einhver hafi stolið af honum pening þá er því oftast tekið sem sannleik.

    Frasinn “saklaus uns sekt er sönnuð” í umræðu um almenningsálit á hreinlega ekki við og þeir sem vilja halda áfram að standa röngum megin við tölfræðina þurfa að fara að finna sér einhver önnur rök til að styðjast við.

Leave a Reply