Mogginn segir banka hafa fallið vegna transfólks

15 comments
  1. Úff, Davíð hefur lengi verið tæpur en sýnist hann loksins gjörsamlega farinn. Það var ekki lélegt kúnnaval, vaxtabreytingar sem höfðu meira áhrif á SVB út af þeirra fjárfestingastrategíu eða bankaáhlaup sem varð þeim að falli, neinei vandinn er að bankinn var of “woke”.

    Það þarf einhver að fara taka tölvuna af Dabba greyinu, þetta er fyrir löngu orðið vandræðalegt.

  2. Þetta er reyndar vitnun í grein sem birtist í Wall Street Journal: https://www.wsj.com/articles/who-killed-silicon-valley-bank-interest-rates-treasury-federal-reserve-ipo-loan-long-term-bond-capital-securities-startup-jpmorgan-bear-stearns-lehman-brothers-b9ca2347

    > Was there regulatory failure? Perhaps. SVB was regulated like a bank but looked more like a money-market fund. Then there’s this: In its proxy statement, SVB notes that besides 91% of their board being independent and 45% women, they also have “1 Black,” “1 LGBTQ+” and “2 Veterans.” I’m not saying 12 white men would have avoided this mess, but the company may have been distracted by diversity demands.

  3. Óhugnarleg tilhugsun að einhver sem lætur út úr sér að banki hafi fallið út af “woke rugli” hafi fengið að stýra Seðlabanka.

  4. Davíð er í mörg ár búinn að vera að endursegja beint Republikana áróður og falsfréttir. Ég var alinn upp á Moggaheimili, en blaðið eftir að hann tók við því er löngu búið að missa allan trúverðuleika.

  5. Veit ekki með birtingu þessarar myndar, hvernig haglabyssan í bakgrunni gengur inn í höfuðið á Davíði.

    Hvað innihaldið varðar, þreyttur á þessu menningarstríði. Þessi litla prósenta LGBTQ hefur engin áhrif á mitt daglega líf, hvað þá líf Davíðs í Skerjafirðinum sem ætti útfrá eigin fjölskyldumynstri að vita betur. Þetta er eingöngu skrifað til að þóknast lesendum sem vilja frekar pæla í þessu en málum eins og spillingu og kjör almennings.

  6. Þetta get woke, go broke dæmi í kringum þennan banka. Það eru einhverjar umfjallanir þarna úti sem vilja meina að yfirmaður fjármálaáhættu í breska útibúinu hafi lítið verið að hugsa um fjármálaáhættur og ekkert verið að meta þær og hafi meira verið að meta málefni hvað varðar pride og framtaksemi til transfólks og þess háttar á meðan að engin slíkur yfirmaður starfaði einu sinni í bandaríska útibúinu í einhverja 8-9 mánuði.

    Er þetta viðkomandi þáttur í annars augljósri vanrækslu á fjármálastarfsemi bankans? Ómögulegt að segja.

  7. Til að reyna að stálmanna rök hans:

    Það er örlítið margin of error í að reka risastórann banka. Þessi tiltekni banki fór mjög langt í “woke” dóti eins og diversity kvótum og slíku, sem leiddi til þess að of mikil orka / fjárafl / mannskapur fór í óþarfa hluti sem og starfsmenn voru ekki endilega þeir hæfustu, sem leiddi svo áfram til þess að bankinn hrundi.

    Persónulega gæti ég alveg trúað að það sé sannleikskorn í þessu, en það væri erfitt að sannfæra mig um að þessi tiltekna ástæða hafi vegið þungt á móti hefðbundnari ástæðum.

  8. Davíd er einn mesti skíthæll og smábarn sem ég hef þurft ad díla vid á minni ævi. Mætti kalla hann Trump íslands. Svo þetta kemur mér lítid á óvart frá honum.

  9. Ekkert út úr karakter hjá manni sem trúir ekki á loftslagsbreytingar að fara apa eftir Tucker Carlson

Leave a Reply