Seðla­bankinn hækkar enn stýri­vexti og nú um heila prósentu

15 comments
  1. Og ennþá skilar ríkisstjórnin auðu og setur reikninginn bara beint á þjóðina og komandi kynslóðir. Flott ábyrg efnahagsstjórnun hjá Sjálfstæðisflokkinum eins og vanalega.

  2. Það þarf enginn að segja mér að þetta sé annað en taktík til að ná sem flestum í verðtryggingar gildruna til að hámarka gróða bankana.

  3. Er skrýtið að stýrivextirnir hafi ekki tilætluð áhrif þegar þeir bíta nær eingöngu fólk með óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum? Þeir hafa lítil áhrif á fólk með verðtryggð lán eða fasta vexti, fólk sem á húsin sín skuldlaust og fólk og fyrirtæki með lán og eignir erlendis. Þótt stýrivextir yrðu hækkaðir um tugi prósenta þá myndi það hafa lítil áhrif á ráðstöfunartekjur þessara hópa.

    Edit: Vantar ekki bæði að Seðlabankinn geti dregið úr neyslu stærri hóps og að ríkisstjórnin slaki aðeins á í útgjöldum og skuldsetningu?

  4. Djöfull nenni ég þessu ekki, mig vantar eitthvað copium, selja og gera sig skuldlausan og búa í húsbíl á kvíðastillandi

  5. Það væri mun hentugara að skylda alla í aukagreiðslur á séreignarsparnaði/lífeyrisgreiðslur yfir x tímabil og stýra neyslu þannig, nær yfir stærri hóp og myndi setja skattgreiðendur í mikið betri aðstæður seinna meir.

  6. Hann segir að það sé svo mikil eftirspurn… En eftir hverju er eftirspurn og hverjir eru að spyrja eftir?

  7. Mér finnst þetta vera SÍ að berja hnefanum í borðið. Það er alger skortur á aðhaldi allra aðila, ríkis, heimila og fyrirtækja. Enda ætlar SÍ ekkert að bíða og vona.

  8. Ég sé ekki hvernig hækkun stýrivaxta á að leysa influtta verðbólgu sem er að mestu leyti til út af röskunum á virðiskeðjum erlendis út af Covid og stríðinu í Úkraínu.

    Eina sem þessi endalausa stýrivaxtahækkun gerir er að setja heimilin á kúpuna. Fyrirtækin eru sömuleiðis með risavaxin lán og auðvitað velta þau kostnaðinum bara beint út verðlagið. Þessi stýrivaxta töfralækning er margfalt verri en verðbólgan sjálf.

    Á þessum punkti er það ekkert annað en stórkostlegt gáleysi af hálfu ríkistjórnarinnar að skila auðu og reiða sig eingöngu á Seðlabankann.

  9. Ásgeir mun hækka stýrivexti yfir 100% fyrr en hann gagnrýnir algeran skort á viðbrögðum Ríkisstjórnarinnar, og kallar eftir breytingum frá þeirri stefnu.

    Sem er fúlt, af því það er það eina sem getur raunverulega hjálpað okkur í þessum málum.

  10. Hvað gerist ef seðlabankinn heldur stýrivöxtum bara niðri? Það er örugglega búið að fara yfir það einhversstaðar. Hvernig áttar fólk sig á því hvernig þetta drasl virkar? Ég, eins og margir, skil ekki neitt.

  11. Gleymi ekki fyrstu kynnum mínum af Ásgeiri Jónssyni, þegar hann birtist á RÚV í hrunvikunni 2008 að lofa því að Kaupthing Bank væri fullkomlega öruggt fjármálafyrirtæki fyrir gjaldeyrisvarasjóð Seðlabankans að veita neyðarlán, verandi þá aðalhagfræðingur KB. Annað hvort var hann svo óhæfur að hann vissi ekki betur, eða laug þá blákalt. Hvort heldur sem er, þá er þessi maður alger pappakassi

  12. Verðbólga eykst > Stýrivextir hækka vegna verðbólgu > húsnæðiskostnaður hækkar v. vaxta > krafa um launahækkanir verður meiri vegna hærri húsnæðiskostnaðar > launahækkanir leiða til aukinnar verðbólgu…

    Vííí gaman, förum annan hring.

Leave a Reply