
[https://www.visir.is/g/20232392647d/telja-pirata-svikja-stefnu-sina-um-eftir-lits-sam-fe-lag](https://www.visir.is/g/20232392647d/telja-pirata-svikja-stefnu-sina-um-eftir-lits-sam-fe-lag)
Ég er sammála Sönnu, þetta er fáránleg hræsni. Píratar í borgarstjórn geta bundið sig í kringlukasti en stefna þeirra og flokksvettvangur varðandi öryggisástand, persónuvernd og ofsóknir stjórnvalda kemur mjög skýrt fram hjá þeim á kjörtímabilinu. Þetta er nú þeirra tækifæri til að sýna hvort þeir meintu þessa hluti eða ekki, og núna eru þau að sýna að það voru bara innantóm orð, það var lítið á bakvið þau!
3 comments
Píratar eru frábærir í stjórnarandstöðu og eiga að halda sig þar. Þeir eru eins og fílar í postulínsbúð þegar kemur að því að taka raunverulegar ákvarðanir.
Ef þú hefur enga hugmyndafræði þ.e. ef þú hefur þá hugmyndafræði að hafa ekkert skipulag á hugmyndum þínum, þá er mjög auðvelt að villast af leið og óvart byrja að styðja hluti sem verkefnið var upprunalega stofnað í augljósri andstöðu við sökum þáverandi aðstæðna og þeirra sem komu að verkefninu.
Píratar eru einfaldlega ekki lengur sá flokkur sem hann upprunalega var, og það er hægt að finna mikið af fyrrverandi stuðningsmönnum Pírata sem voru of “vinstri” fyrir “hugmyndafræðilausa” flokkinn þegar það var augljós hægri holskefla að gerast innan hans – dulbúin bak við hugmyndina um hugmyndarfræðileysi.
Ég held reyndar að sú holskefla hafi róað sig aðeins meira eftir fráhvarf Ernu Ýr (og ákveðins hóps í kringum hana) úr Framkvæmdarstjórn flokksins (ef ég man rétt, gæti hafa verið önnur staða) en á meðan því tímabili stóð þá lét mjög mikið af fólki með raunverulegar anarkískar skoðanir sig hverfa úr flokknum þar sem það var ekkert pláss fyrir það innan hans. Svo ekki sé minnst á þegar Þingflokkur Pírata tók sig saman til að flæma “erfiða fólkið” úr flokknum kjörtímabili eða svo seinna.
Núna eru Píratar eiginlega bara flokkur bjúrókrata, og bjúrókratar taka þátt í bjúrókrasíunni þátttökunnar einnar vegna.
Er ekki sammála. Þetta er algjört ekkert sem fjölmiðlar eru eitthvað að reyna að láta hljóða illa.