Kílómetragjald í stað skattlagningar og eldsneytisgjalds – RÚV.is

10 comments
  1. Svipað og bifreiðagjald átti að vera tímabundið búið að vera til fjölda ára

    Svona eru nýjum skatt stofnum bætt við svo þegar þetta er komið þá er auðvelt að hækka álögur

  2. Kílómetragjald meikar sens theoretískt en ég skeptískur á hvernig útfærsla/rukkun færi fram. Þarf fólk að koma í skoðun mánaðarlega til að láta lesa af mælinum? Árlega? Eða er bara lesið af þegar fólk fer með bílana í núverandi skylda skoðun sem er á tveggja ára fresti? Myndi fólk þá bara fá eina risastóra upphæð í andlitið á tveggja ára fresti?

  3. Ef við horfum framhjá því að kílómetramælar fólksbíla eru almennt hvorki nákvæmir né öruggir, [hægt að eiga við þá á ýmsan hátt](https://www.youtube.com/watch?v=kV0xb6_av5Q), þá er þetta fín hugmynd.

    Man fólk eftir kílómetramæla svindlinu hjá Procar? Þar sem bílaleigan rollbackaði einfaldlega kílómetrastöðu bifreiðanna hjá sér eftir útleigu?

    Og fólk er að spá í að haga skattheimtu eftir aflestri af slíkum mælum?

    Eruð þið að djóka?

  4. Frábær hugmynd að mörgu leyti.

    Helsti kosturinn finnst mér að þetta lækkar verð á nýjum bílum þar sem vörugjöldin lækka.
    Flestir taka lán fyrir nýjum bíl. Ef vörugjöldin eru há þá þarf að borga vexti af þeim og það getur verið mikill peningur. Dæmi 5mkr bíll með 20% vörugjöldum, 1mkr í vörugjöld sem gerir 100þ í auka vaxtakostnað á ári m/v 10% vexti. Að sleppa við að borga þennan 100þ kall í vexti væri alveg frábært.
    Þetta myndi líka ýta frekar undir endurnýjun á bílaflotanum sem ætti að auka umferðaröryggi.

    Ég held það þyrfti aðeins að pæla í landsbyggðinni því fólk sem býr þar keyrir oft meira en borgarbúar og landsbyggðin reiðir sig mikið á flutninga um þjóðvegina. Það er aldrei vinsælt að breyta gjöldum þannig að allt í einu borgar aðili X tvöfalt hærri gjöld en hann hefði ella gert. Og því þyrfti að skoða að koma einhvern veginn til móts við landsbyggðina, til dæmis þannig að gjaldið myndi lækka hlutfallslega með fleiri eknum kílómetrum eða tengingu við lögheimili eða eitthvað þannig. Alls ekki fullkomin lausn, en skárra en að fólk upplifi svakalega mismunun afþví það býr úti á landi.

    Það þarf svo aðeins að pæla í túristunum. Bílaleigurnar fá svakalegan afslátt af vörugjöldum og sköttum af bílum en á móti kemur að ferðamennirnir borga fullt eldsneytisverð. En ef það kemur kílómetragjald og álögur á eldsneyti lækka á móti þá þyrfti að passa að bílaleigurnar nái ekki að losna undan því. Eðlilegast væri að hver ferðamaður borgi gjaldið fyrir sjálfan sig en það gæti verið flækja fyrir leigurnar að gera það.
    Svo eru það ferðamennirnir sem flytja inn eigin bíl og erlendu rútufyrirtækin. Það þyrfti að passa upp á að þeir geti ekki svindlað á þessu.
    Leiðin sem er farin í Sviss fyrir túrista a er líka sniðug, að láta ferðamennina borga fyrir dýran passa sem kæmi í stað kílómetragjaldsins.

    En í grunninn finnst mér þetta snilldar hugmynd.

  5. Fínasta hugmynd að mörgu leyti, en hér er stór galli á ferð í þessari hugmyndafræði. Þetta gæti haft í för með sér en einn “landsbyggðarskattinn”. Ég get ekki séð en að þessi skattur muni leggjast mun þyngra á fólk úti á landi en á höfuðborgarsvæðinu.

  6. Með lækkandi skattafslætti við innflutning á rafbílum mun svona gjald mögulega hægja á rafbílavæðingu á landinu sem er stefna stjórnvalda.
    Þessi staðreynd og þumalputtareglan að skattar séu ekki aflagðir gerir það meira en líklegt að kílómetragjald verði bara lagt á án þess að minnka gjöld á bensín og dísil. Tiltölulega lágt til að byrja með og svo hækka hvert ár þar til óbærilegt er að eiga bensínbíl.

    Helst munu stjórnvöld gera þetta einhvern vegin þannig að vinir þeirra fái eftirlitshlutverk eða skaffi búnað sem verður skylt að vera með í bílum.

Leave a Reply