Frosti birtir opið bréf til ritstjórnar Heimildarinnar

19 comments
  1. Ok hann segir: “Ég hef kannað það sjálfur og niðurstaðan er óyggjandi.”

    En hefur hann birt eithvað af þessu ? Ég amk hef ekki séð nein “sönnunargögn”

  2. Gullið tækifæri fyrir Eddu að þagga niður í Frosta í eitt skipti fyrir öll og svipta hann öllum trúverðugleika og æru. Það eina sem hún þarf að gera er að birta afrit af ráðningarsamning, eða þó það væri ekki nema einn launaseðil, eða prófskírteini sem sýnir að hún sé með verðbréfaréttindi.

  3. er ekki best sleppt að pæla í og hlusta á frosta ef maður vill eiga góðann dag í samvistum við drottinn og svoleiðis?

  4. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem menn hafa efast um þessa atvinnusögu hennar – hún hefur aldrei sýnt fram á að hún sé rétt

  5. Getum við í nafni alls sem er gott og heilagt hætt að sýna þessum sorglega edgelord athygli.

  6. Alveg gífurlega týpískt fyrir svona mann að ráðast gegn trúverðugleika manneskjunnar sem hann upplifir sem ógn.

    Ég veit ekkert um atvinnusögu Eddu, en það breytir engu um þá hluti sem hún segir frá eða þá menningu sem hún berst gegn.

    Frekir karlar hafa alltaf reynt að berjast gegn valdeflingu kvenna með því að fara í persónu þeirrar sem þeir upplifa sem forystuna hverju sinni, einhvern tíma var það Hildur Lilliendahl, núna er það Edda Falak.

    Gerum þeim það ekki til geðs að láta þetta snúast um hennar persónu. Það er þeirra taktík.

  7. Hverjum er ekki drullusama

    Það skaðar ekki neinn þótt að Edda segi satt eða ósatt um ferilskrá sína

    Frosti reynir að stilla þessu upp sem að Edda laug um þetta og þá ljúga viðmælendur hennar líka

    Ef að fólk sér ekki gegnum það að þá er það barnalegt eða að ljúga

    Persónulega er mér drullusama um Eddu en mér finnst frosti vera kríp og þessi herferð viðbjóður

  8. Djöfull er þetta sorglegt. Frosti þarf greinilega einhvern vondakall og Edda er hans erkióvinur í hans augum. Svo er bæði sorglegt og fyndið að sjá einhverja fokking Frosta stans, hér og á Facebook halda að þetta sé eitthvað rosalegt “Gotcha!” moment og að þessar upplýsingar breyti einhverju. Frosti er ennþá piece of shit Incel king sem beitti kærustu sína ofbeldi, hvort einhver hafi logið um eitthvað starf fyrir mörgum árum breytir því ekki, hvað þá þeim sögum sem fjölmargar konur hafa sagt frá í þættinum hennar.

    Svo skuldar Edda ekki neinum af þessum incel aumingjum nokkurn skapaðan hlut. Die mad about it.

  9. Okay sorry en sem alger leikmaður sem er drull um eddu falak er þetta eitthvað svo kjánalegt. Hverjum er ekki sama að hún laug eða laug ekki um að hafa unnið hjá einhverjum banka? Er hún ekki fræg fyrir að vera með podcast þar sem konur koma á svæðið og segja reynslusögur sínar af ofbeldi hverskonar? Af hverju snerist þessi blaðamennska frosta ekki að því?

    Ef að Edda fær til sín gellu á morgun og deilir upplifun sinni að hafa verið flekuð af ICEHOT skiptir þá máli að Edda sagðist einhvern tímann hafa unnið í banka?

  10. Mér finnst svolítið áhugavert hvað mörgum finnst opinberun þessara upplýsinga illkvittinn og sorglegur gjörningur.

    Af hverju ætti ekki að afhjúpa að hún sé búin að ljúga um ferilskránna sína og sinn bakgrunn? Það er alvarlegt mál. Ekki væri ég sáttur að missa af starfi því annar umsækjandi laug stórkostlega um sinn bakgrunn á minn kostnað.

    Né væri ég sáttur sem atvinnuveitandi að ráða einhvern sem laug um að vera verðbréfamiðlari og að vinna hjá stóru lyfjafyrirtæki. Það er ekki hvít lygi, það er lygi sem útvegar þér starf með yfir milljón á mánuði.

    Er ekki sanngjarnt að hið sama sæti um hana og hennar brot komi upp á yfirborðið?

  11. Myndi ekki búast við neinu minna frá manni sem auglýsir á YouTube með þessum orðum “finnst þér stundum eins og allir í kringum þig séu að verða geðveikir og þjóðfélagið sé að fara til fjandans?” (orðalag gæti verið aðeins öðruvísi því ég skippaði þessu gubbi um leið og ég gat.

  12. Feðraveldið hefur alltaf reynt að spila á femíníska aðferðafræði, notfæra sér þær leiðir sem verið er að fara hverju sinni og skrumskæla þær með einhverjum hætti. Í dag eru gerðar tilraunir til að slaufa femínistum (til baka) fyrir glæpsamlegt athæfi, þó ásakanirnar séu illa rökstuddar, glæpirnir óljósir og jafnvel bara alls ekki til staðar.

    Þetta er ansi ódýr leið, enda er að sjálfsögðu hægt að finna eitthvað hjá öllu fólki sem hægt er að skekkja, ýkja og breyta til þess að búa til hentuga útgáfu af sannleikanum. Svo má hleypa sögunni út í litlum skömmtum og dreifa brauðmolum fyrir almenning og óvandaða fjölmiðla að elta. Það má halda hótununum yfir höfði femínistanna sem á endanum brenna upp og hætta. Af því að eins og Cynthia Enloe sagði svo eftirminnilega, „feðraveldið þrífst á kulnun kvenna“.

    Við stöndum í þessum sporum akkúrat núna. Eddu Falak skal refsað, henni skal gert að biðjast afsökunar á tilveru sinni, hún skal leiðrétta einhverjar meintar rangfærslur og útskýra fortíð sína án þess að nokkuð liggi fyrir um hver mistök hennar eru. Hún, sem hefur verið í stafni femínísks aktívisma undanfarin misseri, skuldar allt í einu þjóðinni nákvæmar skýringar á náms- og starfsferli sínum af því að einhver maður með youtube-rás hefur ákveðið að krefjast þess. Hún skal, og jafnvel vinnuveitendur hennar líka, beygja sig í duftið og biðjast auðmjúklega afsökunar á einhverju og svo kemur bara í ljós seinna hverju verður haldið fram gegn henni. Og þá byrjar ballið upp á nýtt.

    Við vitum hvernig ofbeldismenn virka. Við vitum að þessu lýkur ekki hér. Við höfum meira að segja séð það svart á hvítu hvernig þessi tiltekni ásakandi virkar. Hann mun ekki leggja frá sér selfie-prikið þegar afsökunarbeiðnin er komin í hús og játa sig sigraðan. Enda er maðurinn ekki drifinn áfram af sannleiksást eða virðingu fyrir vandaðri fjölmiðlun, heldur á hann sér sögu um [þráhyggjukennda hegðun](https://www.frettabladid.is/frettir/eg-var-haldinn-thrahyggju-og-sagdi-og-gerdi-hluti-sem-eg-se-mikid-eftir/) í garð kvenna.

    Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ranghugmyndum samfélagsins um fortíð eða nútíð femínista er beitt markvisst til þess að draga úr trúverðugleika þeirra og þagga niður í þeim. Af því höfum [við](https://www.visir.is/g/20232393765d) báðar reynslu, rétt eins og aðrar konur sem hafa staðið í stafni femínísks aktívisma á Íslandi. Í gegnum tíðina höfum við undirritaðar ekki aðeins verið krafðar um svör vegna allskonar misréttis og óréttlætis sem fátt annað fólk hefur treyst sér til að hafa skoðun á í samfélaginu, heldur höfum við á sama tíma verið sakaðar um kosningasvindl, ofbeldi, áreitni, að þykja ekki vænt um börnin okkar og ástunda ófagleg vinnubrögð í daglegum störfum. Þær sem stóðu í stafninum á undan okkur upplifðu sambærilegar árásir.

    Það hvort Edda Falak vann í banka eða bakaríi skiptir engu andskotans máli. Ef hún beitir eigin hyggjuviti til að frásagnir hennar um kynbundið ofbeldi og áreitni séu ekki rekjanlegar til tiltekinna staða eða manna er hún að tryggja eigið öryggi, ekki að blekkja almenning. Það er hennar skýlausi réttur og það er óþolandi að við þurfum að skrifa blaðagrein til að útskýra það.

    Nú er kominn tími til að við sem samfélag lærum af þessari reynslu. Leyfum þessum mönnum ekki að komast upp með að „hringja til Danmerkur“ til að taka okkur niður og kenna okkur að skammast okkar. Leyfum þeim ekki að taka af okkur verkfærin okkar sem við nýtum einungis í þágu betri heims, verkfærin sem Edda Falak hefur öðrum fremur nýtt til að veita þolendum skjól, öryggi, rödd og vettvang til að skila skömminni þangað sem hún á heima. Lærum af reynslunni og hættum að láta vænisjúka samsæriskenningasmiði stjórna samfélagsumræðunni.

  13. Úff hvað hann er leiðinlegur.
    Eru allir búnir að gleyma þegar upp komst að Edda hafði svikið samstarfsfólk sitt sem vann með henni við hlaðvarpið? Það þótti mér heldur betur grafa undan Eddu á meðan ég geispa yfir þessari “afhjúpun” hjá Frosta.

  14. Fólk er svo mikið að misskilja (viljandi eða ekki)….

    Fréttin er ekki að hún hafi gert sér upp ferilskrá, enda er það nú ekkert svaka svaka neitt. Hinsvegar er fréttin sú að hún sagðist hafa orðið fyrir áreiti o.fl. Vegna þess að hún var kvenmaður á karllægum vinnustað.

    Ef hún hinsvegar vann ekki á þessum vinnustöðum þá eru þær ásakanir upplognar, það dregur gríðarlega úr trúverðugleika hennar sem blaðamanns sem fjallar nánast eingöngu um slík málefni….

    Smá sykur á CVið skiptir engan neinu máli í þessu samhengi.

  15. Jafnvel þó það væri hægt að færa sönnur á það að Edda sé að ljúga um starfsferil sinn þá breytir það nákvæmlega engu um fortíð Frosta og andlega ofbeldið sem hann beitti sinni fyrrverandi kærustu.
    Ég las umfjöllunina um það mál í Stundinni og e-mailin sem hann var að senda máluðu alls ekki upp fallega mynd af hans innra manni.

Leave a Reply