Hverjir eru raunverulegir femínistar í þessu landi?

3 comments
  1. Femínistar eru alls konar og geta vel verið ósammála án þess að annar aðili sé “ekki raunverulegur femínisti”. Myndi segja að Sólveig og Sóley séu báðar gallharðir femínistar. Eina vandamálið hér er píslarvottsþörf Sólveigar Önnu gagnvart umheiminum.

  2. Augljóslega getur enginn verið femínisti sem ekki styður Sólveigu 100% í öllu sem hún gerir og segir, og ef þú gagnrýnir hana þá hatarðu konur. /s

    Sólveig getur kannski sannfært sjálfa sig og sitt fylgisfólk, en það að hún berjist fyrir kjörum láglaunakvenna þýðir ekki sjálfkrafa að allt sem hún geri sé frábært, femíniskt eða yfir gagnrýni hafið.

    Hópuppsagnir til að lækka laun, hróp á hótelgesti eða persónuníð hafa t.d. ekkert með femínisma að gera, en eru aðferðir sem hún ákvað að nýttust best í baráttunni. Gott og vel, það er hennar ákvörðun, en það er engu að síður fáránleg krafa að heimta skilyrðislausan stuðning femínista bara því hún sé kona og það séu konur í Eflingu.

  3. Hún vælir yfir því að vera gagnrýnd oftar en karlkyns forverara hennar, en átt að sig ekki á því að það tengist ekkert kyni hennar, heldur því að hún er frekar mikið klikkuð.

Leave a Reply