Tillaga um vantraust á hendur Jóni felld

7 comments
  1. Átti ekki von á öðru þannig lagað séð, en það voru samt vonbrigði að sjá hvern stjórnarliðan á fætur öðrum fara upp í pontu og afvegaleiða, snúa út úr eða bara hreint út ljúga að þjóðinni í jafn augljósu máli eins og þetta er.

  2. Á Íslandi eru þrír kerfisflokkar – flokkar hvers eini tilgangur er að koma sínu fólki að kötlunum – hæfni hefur ekkert um það að segja hver gerir hvað. Og á fjögurra ára fresti eru rétt rúmlega helmingur þeirra sem mæta á kjörstað nógu vitlausir að kjósa einhvern þeirra. Og það er vegna þessa rúmlega helmings sem það breytist aldrei nokkur skapaður fokkings hlutur hérna..

    ​

    Þessir flokkar eru alsælir að vera saman í ríkisstjórn um ekkert

  3. Nú getur maður bara beðið og vonað að stjórnarandstaðan verði ekki sannspá um að það verði nýja normið að ráðherrar komi í veg fyrir að stjórnvöld og stofnanir veiti þinginu gögn sem það biður um.

  4. Vonandi er Katrín ánægð með að verða þekkt fyrir að hafa rekið loka naglann í lýðræðið.

    Algjör vonbrigði sem þessi kona er.

Leave a Reply