Vega­gerðin leggst al­farið gegn frum­varpi um lækkun há­marks­hraða

7 comments
  1. >Mikilvægt er að vegfarendur fylgi settum hraðamörkum og til þess að svo verði er grundvallaratriði að þau séu í samræmi við gerð vegar og umhverfi hans þannig að vegfarendum finnist leyfilegur hámarkshraði trúverðugur og sanngjarn og telji því eðlilegt að virða hraðamörkin. Þekkt er að þolinmæði og hegðun ökumanna og vilji til að aka á lægri hraða langar vegalengdir er takmarkaður. Því getur verið nauðsynlegt að hafa valkosti fyrir ökumenn að aka leiðir sem eru með hærri ökuhraða við öruggar aðstæður fyrir aðra vegfarendahópa. Verstu aðstæður eru ef hámarkshraði er lækkaður þar sem ólíkum vegfarendahópum er blandað saman en raunverulegur hraði ökutækja lækkar ekki til samræmis við leyfilegan hámarkshraða. Það getur valdið meiri slysahættu en áður.

    Ég er sammála þessu. Lækkun á hámarkshraða mun mjög litlu skila öðru en að það tekur miklu lengri tíma að komast á milli staða og það verður ógeðslega leiðinlegt að keyra á löngum vegum þar sem augljóst er að hærri hámarkshraði væri eðlilegur.

    Einnig gæti ég alveg trúað því að það muni auka slyshættu þar sem að sumir muni vilja keyra á eðlilegum hraða (miðað við aðstæður) þrátt fyrir að löglegi hámarkshraðinn hafi verið lækkaður.

    Það er vel vitað að Samfylkingin er mesti forræðishyggjuflokkur Íslands en ég bjóst ekki við þessu frá Pírötum sem ég hef kosið áður.

  2. Píratar eru ruglustampar, allar rannsóknir hafa sýnt fram á að of lágur hámarkshraði m.v. akstursskilyrði skapa meiri slysahættu vegna framúraksturs.

    Þetta frumvarp er tilfinninga og popúlismapólitík.

  3. Píratar eru ruglustampar, allar rannsóknir hafa sýnt fram á að of lágur hámarkshraði m.v. akstursskilyrði skapa meiri slysahættu vegna framúraksturs.

    Þetta frumvarp er tilfinninga og popúlismapólitík.

  4. Vegagerðin ætti að líta sér nær. Margir 90km vegir eru alltof ósléttir og mjóir til að réttlæta þann hraða.

  5. Þó að ég sé sammála að það sé betri hagnaður af því að lækka hámarkshraða í þéttbýli, þá er þetta samt ekki rétta leiðinn.

    Það þarf að hana vegi miklu betur, dæmi um mjög góðan vegkafla sem var hannaður með ákveðinn hraða í huga er Háaleitisbraut, hámarkshraði þar er 30 og ekki séns að það sé hægt að fara hraðar, vegna þess hvernig vegurinn er hannaður, Sæbrautin er með hámarkshraða uppá 60 en það er lítið mál að fara miklu hraðar á henni og halda þeim hraða ef þú ert heppinn með ljósin, Reykjanesbraut er síðan með hámarkshraða uppá 90, en að keyra á 110-20 er frekar þægilegt, enda var hún hönnuð með þann hraða í huga.

Leave a Reply