Hvernig líst ykkur á þetta move hjá hopp?

9 comments
  1. „Við erum bókstaflega ekki Uber.”

    Hljómar pínu eins og

    ,,Við erum bókstaflega ekki pýramídasvindl”

    Kannski ekki til að byrja með en sjáum hvað gerist. Vonandi gengur þetta vel.

  2. Ég er mjög áhugasamur um hvernig laun og slíkt ganga upp hjá þeim. Ég veit að tryggingar eru t.d. rosalega háar á leigubílum, og þar sem þetta virðist vera þannig að þú keyrir á þínum eigin bíl þarft þú sjálfur að skipta um tryggingu og borga hana?

    Þú þyrftir þá væntanlega að vinna slatta hvern mánuð bara til að borga trygginguna svo ekki sé minnst á viðhald og allt það. Svo er Hopp með sín 18% ofan á það allt.

    Það er smá Uber-fnykur af þessu en ég væri samt alveg til í að geta tekið leigubíl öðru hverju, eitthvað sem mér hefur aldrei nokkurn tímann dottið í hug áður.

  3. Of snemmt að segja, en ég held að smá samkeppni sé í góðu lagi. Fer mikið til hvernig þeir standa að þessu og hversu vel þeim gengur.

  4. Mér finnst alltaf voða spes að þurfa að vinna fyrir svona stöð án þess að þeir þurfa að útvega bílinn og sjá um viðhald á honum.

  5. Pabbi keyrði leigubíl og stöðvargjöldin voru galin minnir 90.000 og tækjaleiga(mælir o.þ.h.), tryggingar voru 3faldar eða svo og skoðunin dýrari af því þetta var atvinnutæki (sá samt aldrei tékkað eitthvað meira en þetta venjulega). Það er forvitnilegt hvernig þeir standa að þessu fæ þá tilfinningu samt þó þeir segi „Við erum bókstaflega ekki Uber.” að þetta verði svipað. Vona samt ekki það vantar ódýrari möguleika en leigubíla.

  6. Ég er ekki að skilja þetta bissnesmódel. En hvað er svona vont við Uber? Ég nota Uber oft í útlöndum. Mjög sniðugt.

    Erum við á Íslandi og góð fyrir Uber?

Leave a Reply