Héraðs­dómari kærir Margréti fyrir meið­yrði

8 comments
  1. Þessari frétt hef ég beðið eftir síðan ég sá þennan FB póst hennar. Svona hegðun á netinu á ekki að vera hægt að komast upp með.

  2. Það er eitthvað að vera kærður fyrir meiðyrði af dómaranum sem dæmdi þig fyrir hótanir og meiðyrði vegna þess að þú augljóslega lærðir ekkert af því máli og ferð beint á Facebook og rægir hana.

    Veit ekki alveg hvað það er. En eitthvað.

  3. Þetta er svo þreytandi manneskja, eitthvað svona clout chasing, uppreisnar dæmi.

    > „Lögreglan verður að ákveða það hvort þetta fari í ákæru, það yrði mjög skrautlegt. Allir héraðsdómarar landsins yrðu vanhæfir og það þyrfti að kalla inn nýja dómara,“

    Hún hefur pottþétt fengið laglegt adrenaline rush og varð spólgröð við að segja þetta. Þessi manneskja er búin að vera í uppreisnar ham frekar lengi? Hún var athyglissjúk fyrir covid er það ekki, maður hefði haldið að svona framferði væri tiltölulega stutt phase og að maður myndi hrökkva út úr þessu nokkuð fljótt.

  4. Er þetta það sem dómarinn kærir hana fyrir?

    > „Þetta siðblinda pakk er auðsjáanlega að kalla eftir stríði sem þau munu fá, því ranglæti er eitthvað sem ég mun aldrei samþykkja, og enginn vill lenda á þeim stað.“

    Var eitthvað meira þarna í þessari færslu?

  5. Bíddu nú við…

    >„Þetta siðblinda pakk er auðsjáanlega að kalla eftir stríði sem þau munu fá, því ranglæti er eitthvað sem ég mun aldrei samþykkja, og enginn vill lenda á þeim stað,“

    Er þetta það?

    Er þetta of langt?

    Fólk má kalla fólk nauðgara og ofbeldismenn hægri vinstri, en að segja einhvern siðblindann er meiðyrði?

    Hvurslags vitleysa er þetta?

Leave a Reply