https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/04/02/daemi_um_ad_nyja_efnid_geri_menn_haettulega/

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2023-04-01-daudsfall-rakid-til-nys-fikniefnis

Í þessum fréttum er fjallað um 25B-NBOH, nýtt vímuefni á íslenska markaðnum, og kalla höfundar beggja fréttanna það “LSD í duftformi”. Það tekur hinsvegar ekki nema 30 sekúndur á google til að komast að því að 25B-NBOH er gjörsamlega allt annað efni en LSD og virðist vera mun hættulegra.

Það má vel vera að þetta efni sé kallað “Powdered LSD” eða “LSD í duftformi” af þeim sem selja það og kaupa, og jafnvel af lögreglunni líka, en að fulltrúar tveggja af stærstu fjölmiðlum landsins geri heldur ekki greinarmun á þessum efnum finnst mér alvarlega lélegt og skaðlegt umræðunni um hugvíkkandi efni.

Í ljósi þess að yfir síðustu ár hefur notagildi LSD (og nokkurra annara hugvíkkandi efna) í meðhöndlun við t.d. kvíða, þunglyndi og fíkn verið að koma í ljós í rannsóknum – sjá t.d. [þessa samantektarrannsókn](https://www.frontiersin.org/articles/10.3389/fpsyt.2019.00943/full) – þá finnst mér mikilvægt að rétt sé farið með staðreyndir og raunveruleikinn rétt speglaður í fréttum og fjölmiðlum svo rangar upplýsingar og ónauðsynleg hræðsla í samfélaginu hamli ekki mögulegri framþróun í meðhöndlun þessara andlegu sjúkdóma.

Hjálpumst að að vera réttu megin í mannkynssögunni hvað þessi efni varðar.

4 comments
  1. Því miður er það nánast alltaf þannig að “fréttir” eru ekkert annað enn tölvupóstur frá almannatengli úti í bæ sem “fréttamaður” afritað og setti inní fréttaveituna.

    Með tilkomu netsins og dreifingu frétta 24/7 án ritskoðunar eru blaðamenn dauð fegnir að fá að sent efni sem þeir geta nýtt uppí kvóta dagsins og gæðin eftir því.

  2. Hárrétt hjá þér.

    Fyrir áhugasama má benda á að 25x-NBO* fjöskyldan hefur mikið verið seld sem LSD síðastliðin ár bæði á Íslandi og erlendis. Einkenni vímunnar er að nokkru leiti svipuð en þó með áberandi meiri örvunaráhrifum. Þetta getur blekkt leikmenn en vanir LSD notendur þekkja muninn um leið.
    Það er líka hægt að kaupa prufur til að greina á milli. Minnir að þau heiti Ehrlich próf.

    Þetta er sérstaklega hættulegt því LD50 (lethal dose í 50% tilfella) fyrir 25x-NBO* efnin er leiðinlega nálægt neyslu skammti. Það getur verið áberandi hættulegra þegar efnið er tekið í nefið (td. þegar um duft er að ræða), því þá verður hraðari uppsöfnun í blóði en ella. Það er því mjög mikilvægt að vera fullviss um hvaða efni ræðir áður en stóir skammtar eru teknir.

    Til samanburðar eru ekki til dæmi um nein dauðsföll vegna eitrunaráhrifa LSD.

  3. Það eru tveir málaflokkar sem fjölmiðlar um allan heim hafa engan skilning á, og enga löngum til þess að skilja. Það eru ólögleg lyf (vímuefni og vefaukandi lyf (sterar)) og internet counter-culture.

    Ég tek líklega eftir þessu því þetta eru málaflokkar sem ég þekki vel en almenningur þekkir ekki neitt, og því auðvelt að prenta hvað sem þú vilt, eða bara það sem er auðveldast, og enginn gerir athugasemdir.

    Ég tek sérstaklega eftir þessu hjá BBC, því sá fréttamiðill er mjög vel skrifaður og starfsfólkið þar vinnur vinnuna sína vel, í 99 af 100 tilvikum. Og þessi eina undantekning snýr alltaf að þessum málaflokkum, og stingur mig bókstaflega í augum þegar ég skrolla niður síðuna 🙂

    Þetta endar yfirleitt með fyrirsögnum á borð við “Hacker named 4chan sells dangerous new drug to teens on lawless internet forum Reddit”… sigh.

  4. Það þarf að sjálfsögðu að taka það fram hvað þetta efni kallast á götunni uppá forvarnir að gera.

    Til þess að gleðja nokkra eldmóða sýru notendur að ætti þá að koma fram; “Þótt þetta heiti LSD í duftformi að þá er þetta sko ekki LSD og það er full ástæða til þess að trúa að LSD geti haft góð áhrif á kvíða og þunglyndi o.s.frv?” Why bother? Held að þetta sé ekkert að fara stoppa rannsóknir á psilocybin, er ekki psilocybin og LSD bræður annars, rannsóknarstofu útgáfan af því.

Leave a Reply