Hjá þeirri verr settu gætir þú þurft að borga lán fyrir félaga pabba þíns, láns sem hefur ekki verið borgað af og stökkbreyst í skrímsli sem engum hlífir, ekki einu sinni 82 ára gömlum ellilífeyrisþegum sem ekkert eiga. Það eina sem þú erfir af foreldrum þínum eru skuldir annarra. Þessu verður ekki breytt. Svona er þetta. Sökkar að vera þú.
[https://www.visir.is/g/20232395763d/gaeti-thurft-ad-greida-nams-lan-manns-sem-hann-er-ekki-i-neinu-sam-bandi-vid](https://www.visir.is/g/20232395763d/gaeti-thurft-ad-greida-nams-lan-manns-sem-hann-er-ekki-i-neinu-sam-bandi-vid)

Hjá hinni betur settu er nauðsynlegt að passa að foreldarnir geti nú gefið krökkunum sínum svolítið sem 10 milljónir á haus án þess að ríkið fari að fetta skattafingurna í gjörninginn. Þetta er raunverulegt áhyggumál enda er húsnæðisverð búið að rjúka upp. Kannski verður þetta að lögum, hver veit, það er allavega til frumvarp um það. Ekki er til frumvarp um hitt málið.

[https://www.visir.is/g/20232398750d/gagnist-ekki-fataekum-en-tho-theim-sem-hafi-milljonir-a-milli-handanna](https://www.visir.is/g/20232398750d/gagnist-ekki-fataekum-en-tho-theim-sem-hafi-milljonir-a-milli-handanna)

Ég veit að þetta er ekkert nýtt en þetta voru bókstaflega fyrstu fréttirnar sem ég las í dag og það hristi í vinstri slagsíðunni minni. Á maður ekki að verða hægrisinnaðari eftir því sem maður verður eldri og ríkari?

8 comments
  1. Varðandi þetta fyrsta: svona ábyrgð erfist ekki nema búið sé tekið einkaskiptum (sem mig minnir að allir erfingjar þurfa að samþykkja), svo ef það er há ábyrgðarskuldbinding á hinum látna og lítið til er réttast fyrir erfingja að loka búinu sem eignarlausu skv 25. gr. skiptalaga.

    Ég vona að lögum um menntasjóð verði breytt þannig að ábyrgðir falli úr gildi, en þangað til er að mínu mati í raun ekkert athugavert við það að þau sem skrifa undir skuldbindingar, þ.á m. ábyrgðarskuldbindingar, standi við það sem þau skrifa undir, þrátt fyrir að það sé heldur kalt að segja það svona beint út. Annars er þetta væntanlega afskrifað og þá greitt af skattborgurum.

    Edit: einnig í tengslum við innheimtu námslána almennt var [Mannlíf](https://www.mannlif.is/frettir/eldri-borgarar-sligast-undan-gomlum-abyrgdum-a-namslanum-pabbi-radherra-innheimtir/) að greina frá eiganda lögmannsstofu sem innheimtir fyrir menntasjóð: faðir háskólaráðherra. Þetta auðvitað gengur ekki.

  2. Mjög hrifinn af þessu frumvarpi að öðru leyti en að mér finnst að þetta eigi að koma til frádráttar við uppgjör dánarbús, annars opnar þetta á möguleikann að eitt barn fái meira en önnur (en það er kannski það sem einhverjir vilja. Sumir vilja eflaust ekki að svarti sauðurinn í fjölskyldunni fái arf sem tók þig heila ævi að byggja upp bara til að eyða honum í vitleysu).

    10 milljónir er ekki mikið í stóra samhengingu þegar margir foreldrar sitja kannski á fasteignum sem eru 100+ milljóna virði og skulda lítið í þeim eða eiga jafnvel skuldlaust af því að þau keyptu þær fyrir 15 milljónir fyrir 30 árum.

    **Viðbót* Við þetta má bæta að þetta er gert nú þegar af mjög mörgum, það er bara skráð sem lán frá einkaaðila í skattframtal. Lánið er svo bara niðurfært um X upphæð á hverju ári. Ég er t.d. með “lán” frá foreldrum mínum í mínu skattframtali sem lækkar um Y kr. á ári án þess þó að ég sé eitthvað að borga það til baka. Gallinn við það er hins vegar að ef foreldrar mínir deyja í bílslysi á morgun þá skulda ég dánarbúinu höfuðstólinn á síðasta skattframtali.

  3. Hef litla skoðun á þessu frumvarpi, en varðandi síðasta punktinn, þá var mér sagt þetta líka sem ungum manni.

    Ég hins verðar verð vinstri sinnaðri eftir því sem ég verð eldri og betur settur, ef eitthvað er.

  4. Sjá einnig hvernig þetta er höndlað.

    Námslánið:

    > “Háskólaráðherra hefur óskað eftir gögnum um þá ábyrgðamenn sem skildir voru eftir þegar ábyrgðarmannakerfi á lánum var lagt af. Hún segir hrakfarir áttræðrar konu, sem stendur frammi fyrir fjárnámi, sýna að tilefni sé til endurskoðunar.”

    Erfðaskattur:

    > Hviss, búmm! Frumvarp tilbúið og lagt fram!

  5. Með öllu sammála því að ábyrgð fyrir eldgömul LÍN lán sé eitthvað sem ríkið þarf að taka á. Það rugl á ekki að líðast.

    Hins vegar með 10 milljóna arfinn þá þykir mér það frumvarp mjög góð hugmynd. 10 milljónir eru ekki mikill peningur og heill hellingur af fólki sem á slíkan sparnað. Þessi upphæð er ekki bundin við hálaunafólk.

  6. Fyrra dæmið er bara eðlilegt. Það er tekið sérstaklega fram að þetta gerist ef búið er skipt með einkaskiptum. Í einkaskiptum taka erfingjar á sig sjálfsskuldarábyrgð vegna skuldbindinga hins látna. Pabbi gaursins tók á sig ábyrgð á láninu umræddu.

    Eina fréttin hér er tilætlunarsemi væntanlegs erfingja, sem vill fá eignirnar en ekki skuldirnar, vegna þess eins að hann þekkir ekki skuldunautinn persónulega.

    Hvað hina fréttina varðar, þá er þetta algjör stormur í vatnsglasi. Það er 10% erfðafjárskattur á Íslandi, þ.a. hér sparast að hámarki ein milljón fyrir hvert dautt foreldri.

    Þetta er smáræðisupphæð sem hefur enga merkingu fyrir fólk sem á bót fyrir brók, en gæti kannski hjálpað þeim sem næst-minnst mega sín.

    Hvað er fólk að gera stórmál úr þessu, þó að hinir alfátækustu njóti ekki líka mikinn góðs af? Skattpínum frekar hina ríku og gefum þeim fátæku, heldur en að skattpína meðaljóninn til þess sama.

  7. “Guðrún segir frumvarpið hafa orðið til vegna ástandsins á húsnæðismarkaði þar sem foreldrar reyni margir hverjir að aðstoða börn sín að komast inn á markaðinn.”

    Jæjja, húsnæðisverð búið að hækka alltof mikið, svo við reddum því bara með því að dæla enn meiri peningum inn í eftirspurnina, en bara fyrir þá sem eiga vel stæða foreldra…

    Hvernig væri að setja frekar fókus í að byggja meira/ódýrara og byggja up stöðugan leigumarkað með sterkum stofnanafjárfestum, og styrkja réttarstöðu leigjenda, svo allir geti gengið að þaki yfir höfuðið á mannsæmandi verði?

  8. Ég get lítið sagt um þessi námslán, eg hef mjög lítið vit á þeim en mér finnst skattlagning á erfðafé alveg fáránlegt þar sem það hefur nánast undantekningarlaust þegar verið skattlagt a.m.k. einu sinni (t.d. tekjuskattur, eignarskattur o.fl) og mun verða skattlagður aftur þegar erfingjar nota þessa peninga (t.d. vaskurinn)

Leave a Reply