
Mig langar að kaupa Morgunblaðið sem kemur út á aðfangadag til þess að geta spreytt mig á árlegu myndagátunni. Mér er sama hvort það er rafræn útgáfa eða pappír en minnsta áskriftarleiðin sem þau bjóða upp á er [vikupassi á 2þús](https://www.mbl.is/askrift/) sem er dýrara en ég hefði viljað.
Vitið þið hvar ég get keypt Morgunblaðið í stykkjatali? Eða er einhver rafrænn áskrifandi til í að senda mér bara þetta eina tölublað?
3 comments
Held þetta fáist yfirleitt í sjoppum, annars get ég sent þér PDF-skjalið þegar það kemur.
Bókabúðir, sjoppur/bensínstöðvar og smærri verslanir sumstaðar úti á landi.
Hringdu í Eyþór og spyrðu.