https://www.visir.is/g/20232398886d/-vid-erum-ad-halda-afram-i-thessu-frjalsa-falli-

Þetta er ekki flókið, þetta er ekki geimvísindi. Fólk er ekki lengur að eignast börn því fyrir það fyrsta getur það ekki eignast þak yfir höfuðið (húsnæðismarkaðurinn).

6 comments
  1. Ef þetta er svona einfalt, af hverju er neikvæð fylgni á milli hlutfalls þjóðar sem býr í öruggu húsnæði og fæðingartíðni?

  2. Lausnin er nú þegar til staðar, útlendingar fylla upp í þetta gat sem lækkandi fæðingartíðni skilur eftir sig.
    Er eitthvert stjórnmálaafl búið að fjalla um lækkandi fæðingartíðni? Ég man ekki eftir því.

  3. Viða í heiminum hefur verið reynt margt til að auka fæðingartíðni. Það hefur stundum skilað árangri til skamms tíma en ekki til lengdar.
    Það eru margir þættir sem skipta máli, svo sem aukin menntun kvenna, breytt makaval því samfara og önnur forgangsröðun í lífinu en áður fyrr.
    Þetta er mjög erfitt viðfangsefni, alls ekki einfaldara en geimvísindi.

  4. Margar ástæður fyrir því að fólk eignast færri, eða als engin börn, til dæmis er í dag ekki lengur taboo að vilja ekki eignast börn, samfélagslegi þrýsingurinn verður alltaf minni og minni, ekki síst vegna minna vægis trúarbragða í samfélaginu.

  5. ÉG spyr því ég er ekki viss. En ég las einnhverja rannsóknargrein þegar kóvid var nýtt að veiran gæti haft neikvæð áhrif á sæði til að frjóvga egg. Svo hefur verið talað um að bóluefnin geti haft neikvæð áhrif á konur. Getur verið að minnkun fólksfjölgun séu byrjuð að birtast með þessum hætti útaf kóvid og bóluefnum?

    Veit að þetta er ekkert voðalega málefnalegt þar sem ég er ekki að koma með einhverja linka á greinar.

Leave a Reply