Var ekki Bogi um daginn að segja að esb reglugerðin fit for 55 myndi gera út um flugbransann á Íslandi og ferðabransann?
Hvernig ætlar icelandair að borga fyrir vélarnar þegar viðskiptamódel fyrirtækisins gengur ekki upp?
Voru þetta kannski bara ýkjur?
Maxinn hefur reyndar reynst Icelandair ótrúlega vel, þrátt fyrir að það hafi þurft að stöðvs notkun á honum lengi – Icelandair nær að fljúga á honum til Orlando sem er lengra en upprunaleg drægni flugvélarinnar gerir ráð fyrir.
Höfuðvandamálið er að 757 vélin er bara orðin gömul – Þetta eru frábærar vélar og allt það, en viðhaldskostnaðurinn á henni er gjörsamlega orðinn brjálaður og versnar og versnar með tímanum. Allar flugvélar þurfa að fara í gegnum reglulegar skoðanir, svokölluð A, C & D check og því eldri sem vélin er því lengra og dýrara er það. Það getur vel kostað tæpan milljarð að láta C-checka 757 í eldri kantinum.
Icelandair var lengi í viðræðum við Boeing og Airbus, en ég held að A321XLR verði mjög hentug vél fyrir þá. Langdræg, kostar lítið að fljúga henni og þetta er í raun eina vélin sem er að koma út sem hentar í svipað hlutverk og 757.
Stóra vandamálið sem ég sé fyrir mér núna er að það þarf að ráða inn eða crosstraina alveg fáránlegt magn af fólki – Allar áhafnirnar þeirra eru með vottun fyrir Boeing og sama gildir um alla flugvirkjana. Þeir hafa nægan tíma í þetta en kostnaðurinn er ekkert djók.
2 comments