Nú liggur frumvarp fyrir velferðarnefnd í þriðja sinn er varða það að leyfa hunda og kattahald almennt í fjölbýlishúsum.

Eins og reglurnar eru núna er verið að mismuna fólki.

Síðustu tvö ár strandaði frumvarpið í einhverri nefnd, látum það ekki gerast þriðja árið í röð.

Hér eru upplýsingar um frumvarpið: https://www.althingi.is/altext/153/s/0080.html

Og hér er undirskriftalistinn: https://listar.island.is/Stydjum/137

18 comments
  1. Þetta frumvarp á að fljúga í gegn og næst má banna leigusölum að banna dýrahald í leiguíbúðum.

  2. Fólk með ofnæmi getur þá aldrei keypt sér íbúð í fjölbýli vegna hættu á ótillitsömum nágrönnum.

    Þetta er fáránleg hugmynd.

    Frekar að banna þetta almennt í fjölbýlum og takmarka við húsnæði eða íbúðir sem eru alfarið með sérinngangi.

  3. Ég er hundaeigandi og ég er smiður búinn að vinna við allskonar framkvæmdir á fasteignum síðan byrjun þessara aldar og tel mig hafa smá vit á þessu.

    Nú eiga margir eftir að vera ósammála mér en þetta er bara staðreynd. Mín reynsla er sú að þar sem gæludýr, aðalega hundar og kettir búa er töluvert meiri slit á íbúð og þá sérstaklega á gólfefnien en þar sem ekki er gæludýr.

    Er samgjarnt að þau sem eiga ekki gæludýr þurfi að taka þátt í auknu viðhaldi og kostnaði *á sameign** sem fylgir fólki sem eiga gæludýr?

    og Plís ekki koma með gæludýr vs. Börn bull rök Börn eru ekki gæludýr!

    *edit* lagaði stafsettningu og bætti við “á sameign”

  4. Hvergi meira dýraofnæmi í heiminum heldur en á Íslandi miðað við hvernig fólk talar um þetta, alltaf svaka drama yfir þessu. Ég allavega styð þetta frumvarp heilshugar, finnst alveg fáránlegt fyrirkomulag eins og þetta er.

  5. Að einangra dýr inni í litlum steypuklefum í 23-24 klst á dag er dýraníð.

    Það er til háborinnar skammar að þetta viðgangist almennt í samfélaginu og nú á að setja lög sem banna takmarkir á þessu ofbeldi.

    Afkomendur okkar munu ekki fara fögrum orðum um okkar samfélag og helst vilja stroka okkur úr sögunni þegar þrælahald dýra í þeim eina tilgangi að skemmta eigandanum verður réttilega bannað.

  6. Và hvað meirihluti Íslendinga er leiðinlegir vælukjóar ef manneskja vill vera með dýr heima hjá þér þá kemur þér það bara ekkert við Karen og kalli hættiði þessu eintóma væli og horfið á ykkur sjálf í staðinn fyrir að dæma endalaust aðra

  7. Það er öllum sama hvaða dýr eru heima hjá fólki, þetta snýst ekki um það. Hins vegar hlýtur fólk með eða án ofnæmis að mega hafa eitthvað um það að segja hvort dýr séu leyfð í sameigninni sem það á part í.

    Og áður en einhver brjálast þá er ég með hundaofnæmi en hef búið í fjölbýli með hundi, og myndi ekki banna það. En það er til fólk td með meira ofnæmi, og það verður að virða.

  8. “Það liggur í hlutarins eðli að þetta kemur harkalegast niður á fátæku fólki sem á ekki val um að búa í einbýlishúsi eða íbúð með sérinngangi.”

    Alveg elska ég það að þau skuli setja þetta mál í fátækrabúning í greinargerðinni.

  9. Það helsta sem ég hef á móti því þeirri hugmynd að fólk geti haldið dýr í fjölbýli án samþykkis hinna íbúanna, er aðallega líkur á sígjammandi hundum.

    Það er óþolandi.

  10. Nokkrir kettir í blokkinni minni sem halda að þeir eigi allar íbúðirnar, eiga stundum til að stökkva inn um gluggana mína þegar þeir eru opnir og ég þarf að reka þá út. Helsta áhyggjuefnið mitt er að ég á tvo hunda sem er sérstaklega illa við ketti, hlakka ekki til þegar þeir eru heima og einn köttur ákveður að stökkva inn í gröfina sína og þar með verða valdur að lógun minna hunda. Banna lausagöngu katta áður en svona er leyft

  11. Hundaeigendur eru sjálfhverfa í mannsmynd.

    Ef þú vilt dýr skaltu búa þar sem það má.

    Meirihluti hunda sem ég sé í Reykjavík eru óuppalið geltandi lið og 50% af skít tekinn upp.

Leave a Reply