Mig langar að benda ykkur á Félag Ása á Íslandi sem er hagsmunafélag eikynhneigðra og eirómantískra (asexual og aromantic). Við erum að vinna í að vera sýnilegri svo að þeir sem þurfa á okkur að halda viti af okkur enda erum við búin að lenda í því nokkrum sinnum að einhverjir einstaklingar rákust á okkur fyrir rælni og var svo létt að þeir væru ekki einir í heiminum og að það væri ekkert “að þeim”.

Þessi litli hópur hefur ekki verið áberandi enda er þetta pínulítið eins og að stofna hóp fyrir fólk sem stundar ekki fótbolta eða fer aldrei í keilu og manni finnst þetta stundum pínu tilgangslaust. En svo fattar maður að það er bara biluð forréttindablinda því að það er fullt af fólki sem er eikynhneigt eða eirómantískt á einhvern hátt og lifir með hrikalegri pressu frá samfélaginu að vera það ekki.

Það eru ennþá rosalegir fordómar gegn fólki sem ekki er gagnkynhneigt og ásarnir verða oft útundan í umræðunni. Sumir pína sig í að lifa einhverju lífi sem gerir þá hreinlega óhamingjusama bara til að passa inn í sitt samfélag og á allra verstu stöðunum er þvingun og ofbeldi beitt til að “laga” fólk.

Við erum með vefsíðu, facebook síðu, lokaða grúppu, discord og instagram síðu. Það er flott að byrja bara á vefsíðunni en það eru allir velkomnir og ekkert mál að svara spurningum.

Bendi samt á að það eru fínar útskýringar á eikynhneigð nú þegar á netinu, sumt meira að segja á íslensku og sumt á síðunni okkar (við eigum eftir að setjast niður og þýða allan andskotann x_X meira að gera en segja).

Ef bara ein manneskja sér þennan póst sem þarf á því að halda þá er það þess virði, ekki satt? 🙂

https://www.asaraislandi.is/

5 comments
  1. Ég styð ykkur 100% í baráttu ykkar fyrir réttindum, en ég hélt fyrst að þetta væri nýtt orð til að nota fyrir Ásatrúarmenn.

    Ásar er samt mjög fínt orð og á vel við ykkar hóp þannig haltu áfram að vera þú og gangi þér vel.

  2. Gaman! Ég er demisexual sem er undir ása”regnhlífinni” og vissi ekkert af ykkur! Gangi ykkur rosa vel að fræða, við erum til!

  3. Innilegar þakkir fyrir þetta! Ég er eikynhneigð og eirómantísk kona og langflestir vinir mínir eru samkynhneigðir karlmenn. Það ríkir að jafnaði mikill skilningur meðal okkar en stundum upplifi ég samt engan samastað því það er alltaf sjálfgefið að fólk sé með einhvers konar kynhneigð, og litið á kynhneigðarleysi sem galla, þó að ekki verði nefnt skýrum orðum. Mikið hlakka ég til í að spjalla við önnur í svipuðum sporum um upplifanir sínar 🙂

Leave a Reply