Fimm ára stúlka innbyrti hlaupbangsa fullan af kannabisefnum.

10 comments
  1. Voðalega sniðugt samt að hafa þetta í svona hlaupböngsum, mun minni líkur á að nein fatti að þetta sé eitthvað ólöglegt og varla eins og löggan stoppi þig og heimti að testa einhverja hlaupbangsa, gallinn er náttúrulega að krakkar sækjast í þetta en lítið hægt að gera í því.

  2. “Einhverra hluta vegna er efnum komið fyrir í hlaup „fígúrum“ dulbúið sem sælgæti sem oftast er markaðsett fyrir börn.”
    Hvaða börn eiga efni á svona nammi? er svona barnalegt að borða hlaup?

  3. Hata þegar dóp birtist bara í kringum mig dulbúið sem nammi, ég er bara alltíeinu búinn með eitthvað dóp páskaegg. Kannski þegar þetta verður löglegt þá er hægt að fá alvöru muchie páskaegg með thc eða cbd. Nennir eitthver að vinna í þessu?

    En er ekki kominn tími á lögleiðingu, allt í kreppu og veseni vitiði hvað er hægt að moka inn á þessu, er ekki helling af gróðurhúsum í hveragerði? Er Bjarni ekki alltaf til í að græða? þá er líka hægt að merkja pakkningarnar! og actually vita hvað maður er að kaupa? eða er ég bara búinn að borða of marga bangsa?

  4. Finnst það svo áhugavert að þau taki það oft fram að “við þekkjum enga fíkla”. Þarft ekki að vera “fíkill” að mínu mati þó þú kannski viljir prófa kannabis bangsa. Finnst þetta persónulega hljóma eins og áhugaverður hlutur til að prófa.

    En á öðrum nótum er auðvitað ömurlegt að þessi stelpa hafi borðað hann. Örugglega ekkert minna en skelfing að finna fyrir einhverjum áhrifum og maður veit ekkert hvað er í gangi.

  5. “Eldri börnin tvö spurð hvort þau könnuðust við eitthvað við þetta og bæði svöruðu „Hvað er kannabis?“ þar með voru þá hreinsuð af grun.”

    Ekkert múður! Þvagprufa á línuna!

  6. Þetta er hræðilegt? Hvar gerðist þetta nákvæmlega, svo ég geti varast þetta!

  7. kannski er amman ekki sökudólgurinn hérna.
    ömmur eiga það til að vera “miðja” í ættum þar sem margir koma við.
    hugsanlega er eitthvað annað barnabarn að naga á sér neglurnar að vona að þetta gleymist sem fyrst.

  8. >Fimm ára stúlka á Selfossi var hætt komin

    Hún hefði þá verið fyrsta manneskjan í sögu alheimsins til þess að deyja af völdum kannabis.

    Íslensk fréttamennska upp á sitt besta.

Leave a Reply