Hagnast um 860 milljónir

3 comments
  1. Kannski óhætt að halda fram að verðbólgan sé ekki innflutt vandamál? Þetta eru 860 milljónir sem húsbyggjendur greiða beint í vasa eigenda félagsins. Fylgjumst vel með því hvaða fyrirtæki eru að greiða eigendum sínum mikinn arð á þessum “aðhaldstímum” þar sem “við þurfum öll að leggjast á árarnar”.

  2. Okur á öllum stöðum í framleiðslulínum okkar, þ.a.m. í húsnæðisgeiranum, er grunn ástæðan fyrir verðbólgunni okkar. Það er líka ytri ástæður, eins og t.d. stríðið í Úkraínu, en áhrif ytri aðstæðna eru alltaf blásin upp í ystu æsar til þess að fela áhrifin frá innlenda okrinu sem leggst á öll viðskipti, á öllum stigum, í öllum geirum; allt frá komu hráefnis til landsins til neyslu varnings á lokastigi keðjunnar.

    Allir á Reddit kannast við verðbólgu þegar það er talað um að gjaldfella peninga í umferð með að prenta fleirri peninga, allir geta dregið upp sögur um hjólbörufarma af peningum þegar einhver talar um aukin ríkisútgjöld. Einhvernveginn missum við oft sjónar af algengustu leiðinni til að skapa verðbólgu sem er innifalin í heiti hugtaksins – það að láta verð bólgna upp.

    Þetta okur á öllum stöðum í framleiðslulínum okkar er að framkalla nákvæmnlega þann gjörning að blása upp verð fram yfir það sem annars væri eðlilegt virði. Fyrirtæki og einstaklingar sem stunda þetta komast upp með gjörninginn í skjóli ráðandi stöðu á markaði, eða annara áhrifa svo sem laga og reglugerða sem aldrei eru endurskoðaðar.

    Verðbólgan er fyrst og fremst sökum peninga og efnahagsstefnu okkar sjálfra, sem og skorti á reglugerðum fyrir aðstæður samtímans, og sökum pólitísks ómöguleika þeirra sem ráða hérna og miðað við meirihluta-stemmaran í þjóðfélaginu held ég að það muni ekki breytast í bráð.

  3. Það er líka eitt sem gleymist. Hagnaður fyrirtækis þýðir ekki endilega hagnaður til eigenda. Langt um færst fyrirtæki greiða út arð. Lang flest nota hagnað til að þróa nýja vörur, byggja eða bæta aðstöðu eða byggingar eða launahækkanir fyrir starfsfólk. 15% hagnaður af tekjum er ágætlega hátt en það er langt frá því að vera óeðlilegt.

Leave a Reply