Lík­legra að læknast af ebólu en að komast af leigu­markaði – Vísir

9 comments
  1. >Af þeim hátt í 40 þúsund íbúðum sem hafa verið byggðar frá árinu 2005 hafa fjárfestar og fyrirtæki keypt flestar þeirra, rúmlega 26 þúsund eða um tvo þriðju.

    >Árið 2022 fór 56 prósent allra nýbygginga til fjárfesta og fyrirtækja og hlutfall þeirra sem aðeins eiga eina íbúð heldur áfram að lækka. Líkurnar á því að einstaklingur eignist eina íbúð hafi minnkað um 71 prósent, miðað við tímabilið á árunum 1994 til 2004.

    Hvaða andskotans rugl er þetta?

    Getur einhver sagt mér hvaða þingflokkur ætlar að stöðva þetta (eða helst snúa þessu við)? Því sá flokkur fær mitt atkvæði.

  2. Ég keypti mína íbúð fyrir tæpum 6 árum á 27.6m.
    Sambærileg íbúð í dag á þessu svæði er á 47+m.
    Mínar tekjur hafa *ekki* hækkað hlutfallslega jafnmikið á þessum tíma.

    Ég bara… á ekki orð. Þetta er hrein sturlun.

  3. Hef ekki fundið íbúð fyrir lok þessa mánaðar ennþá og mig langar stundum bara til að skæla. Verð líklega komin með magasár af stressi ef þetta heldur svona áfram

  4. Nú hafa fleiri greinar komið með tölur um einstaklinga sem eiga fleiri en eina íbúð og bent á HMS sem source en ekki hvar og hvernig inná þeirra síðu þú finnur þær, enda er hún mjög ílla uppsett og hef ég ekki enn fundið þær.

    Ég er sammála um að leigumarkaðurinn sem og ibuðamarkaður almennt sé ekki góður en ég tek nú ekki hlutum frá þessum manni gagnrýnislaust, var það ekki hann eða þetta félag hans sem kom með leiguverðs reiknivél sem var svo brotin að eigendur ættu að greiða með leigendum.

  5. Hvernig væri að setja takmarkanir á hversu margar íbúðir/hús maður má eiga?

    Hætta að leyfa svona fjárfestingar nema til að búa í þeim.

    Og svo setja takmarkanir á fyrirtæki.

  6. Ef ég smitast af ebólu þá fæ ég aðstoð frá ríkinu, sjúkratryggingum og jafnvel öðrum tryggingum.

    Það er lítið um svoleiðis á leigumarkaðnum.

  7. [https://fb.watch/j_jIZVVYob/](https://fb.watch/j_jIZVVYob/)

    >Leigumarkaðurinn eins og hann lítur út í dag, hann er verk stjórnvalda. Og það er engin að segja mér að fimmhundruð sérfræðingar hjá ríki og sveitafélögum með kanski tvö til tvöþúsund og fimmhundruð ára háskólanám á bakinu, vinnandi við þetta tvöhundruð og áttatíu daga á ári í tíu ár að enhvað af þessu hafi gerst óvart.

Leave a Reply