>Ástæða þess að Landsréttur hefði látið mennina lausa úr gæsluvarðhaldi hafi verið sú að ekki lægi fyrir hvort alvarlegasti áverki þolandans, djúpur skurður á slagæð á handlegg – sem sjá má á mynd að neðan, hefði verið af völdum árásarmannanna eða vegna brotinnar rúðu sem þolandinn fór í gegnum.
Hvílíkur brandari. Maðurinn hafði þolað þriggja klukkustunda langar pyntingar, beinbrotinn á báðum fótum, margstunginn og blæðandi, og brýtur rúðu í örvæntingarfullri tilraun til þess að flýja og bjarga þannig lífi sínu.
Hvernig í ósköpunum er áverkurinn ekki af völdum árásarmannanna hvort sem að þeir hafi skorið hann beint eða hvort hann hafi slasast við það að forða sér? Þeir bera augljóslega ábyrgð í báðum tilfellum!
Galið.
Lesið þennan viðbjóð. Guð minn almáttugur.
>Í greinargerð lögreglu um kröfu um gæsluvarðhald yfir árásarmönnunum kom fram að maðurinn hefði verið bundinn við stól, barinn ítrekað, stunginn með stálröri, hnífi og broti úr spegli. Þá hafi báðar ristar hans verið brotnar með barefli.
>„Þeir eru með ítarlegt vídeó af þessu öllu saman, gerendurnir tóku þetta allt upp. Við erum að tala um dúkahníf, speglabrot, hamar, belti og stálrör. Á meðan að þetta á sér stað er hann strappaður allsber í stól og tape-aður um andlitið, hann gat varla andað,“
>Hann hafi komist undan og náð að brjóta rúðu í nálægu húsi til að vekja athygli á sér. Hann hafi hins vegar verið eltur uppi og skellt í gegnum rúðuna. Þá hafi árásarmennirnir tekið eftir því að blæddi verulega úr slagæð á handlegg mannsins. Því næst hafi þeir skilið hann eftir með síma svo hann gæti hringt á aðstoð, en samkvæmt heimildum fréttastofu var maðurinn afar hætt kominn þegar sjúkraflutningamenn bar að garði.
Það kemur mér alltaf á óvart að fólk haldi að við búum í bananalýðveldi þar sem saklausu fólki er stungið í fangelsi bara af því bara.
3 comments

Finna þessi ógeð og smetta þá