Samfylkingin slítur sig frá Sjálfstæðisflokknum | maskina.is

6 comments
  1. Sætafjöldi skv þessari könnun væri

    S: 18 (+12)
    D: 13 (-4)
    P: 8 (+2)
    C: 7 (+2)
    B: 7 (-6)
    V: 6 (-2)
    M: 4 (+2)
    F: 0 (-6)
    J: 0 (+0)

    Samkvæmt þessu þá er tveggja flokka stjórn ekki möguleg, en nokkrar þriggja flokka stjórnir eru möguelgar. Í fyrsta lagi gætu S og D tekið hvaða flokk sem er með sér en það verður að teljast ólíklegt að S og D færu saman í stjórn. Annars þá gæti S myndað stjórn með einhverjum tveimur af P/C/B, sem myndi vera líklegasta stjórnin ef þetta væru niðurstöður kosninga að mínu mati.

  2. >Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur **852**, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endurspegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 13. til 19. apríl 2023.

    það er ekkert að marka þessar kannanir… þó gögnin séu vigtuð samkvæmt þjóðskrá… úrtakið er svo lítið að það segir voða lítið

  3. Svona kannanir eru óttalegt bull og lítið annað en dúsa og friðþæging. Þetta gerir ekkert, sjálfstæðisflokkurinn ræður enn öllu þangað til fólk actually mætir á kjörstað og kýs annað.

  4. Sakna þess að sjá spurningar um fyrri atkvæði þeirra í kross við hvað er líklegast að viðkomandi kjósi núna. Engin leið að segja það úr þessum tölum, en fylgisaukningin virðist aðallega vera að koma frá öllum þrem ríkisstjórnarflokkunum og fara helst til Samfylkingarinnar og Viðreisnar.

    Ég er svo sem ekki líklegur til að gefa Samfylkingunni fleirri sjénsa á þessu lífsskeiði, en þrátt fyrir það er þessi fylgisflutningur gleðiefni fyrir mitt leiti. Allt er að mínu mati betra en áframhaldandi stefna, meira segja stöðnun er betri en núverandi stefna.

    Ég er samt ekkert viss um að þessi niðurstaða myndi vera hvarf frá núverandi ríkisstefnu, en ég er svo sem ekki viss um neitt þegar það kemur að Samfylkingunni. Ef einhver gallharður Sósíal Demókrati vill sannfæra mig um að ég meigi vænta breytinga ef Samfylkingin nær góðri kosningu þá væri ég alveg meira en til í að hlusta á það bara svona til að sofa betur.

    Annars bara til hamingju Kristrún, burt séð frá allri hugmyndarfræði þá er þetta dúndur árangur.

Leave a Reply