Nú þar sem fræðingar í þessum félagslegu málum eru farnir að tjá sig sé ég tilefni til að koma með innlegg í umræðuna.
Ég ætla að segja að það sé ekki nóg með að ofbeldi sé normalíserað, heldur sé það glansmyndað.
Slagsmálamyndbönd ferðast eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla og eftirlitsfólk (stjórnendur) hafa ekki undan að eyða samfélögum sem gera út á að skiptast á slíku myndefni.
Ég held að hér séum við að sjá hættulega samsetningu kæruleysis eða skilningsleysis foreldra og forráðamanna, villta unglinga á viðkvæmu mótunarskeiði undir miskunar algríms samfélagsmiðla, og þeirrar brenglunar sem verður; átti aðili sig ekki á því að verið sé að mata sig efni í ætt við það sem hann hafi neytt áður, án þess að reyna að slíta sig frá því, lýtur heimurinn eflaust út fyrir að fara stöðugt versnandi. Og hvað er þá annað til ráða en að taka upp hnefann?
Ég hugsa að sérfræðingar vita þetta nú þegar og vilja ekki endilega tala um þetta, en ég held að það sé viss vonleysi hjá ungmennum í dag. Við höfum áður séð þessa þróun að ofbeldismálum fjölgar þegar það ríkir stríðsástand.
En svo oft er litið framhjá hvað þessi ungmenni hafa lítið að hlakka til. Það er mjög alvarlegur veruleiki að þessi ungmenni hafa ekki efni á að flytja út með maka fyrr en þau verða 30, það er dýrt að eiga börn, fara á deit, út að borða, eiga hús og reyna að hafa eitthvað líf sem er sambærilegt foreldrum þeirra.
Svo er ekki einu sinni minnst á loftlagsvána sem við búum við. Mér finnst ekki skrýtið að krakkar séu að reyna að ná í eitthvað auðvelt dópamín í slagsmálskúltur á samfélagsmiðlum þegar það er í raun allt að hrasa í kringum þau. En það er mun auðveldara að sjá bara vandann við nýju hlutina eins og börn voru aldrei að slást fyrir.
Fara ensku leiðina þar sem lítið er sömu augum að vera með eggvopn og að bera skotvopn?
Ég þekki mann.
(Alhæfingar fyrir stíl, þið skiljið)
Hann er búinn að vinna með börnunum síðan 90’s.
Hann er búinn að vera að tala um það síðan svona 2010 að foreldrar séu búnir að missa vitið.
Það ber enginn ábyrgð á neinu. Börn og ungmenni þurfa aldrei að standa með gjörðum sínum eða bera ábyrgð á þeim. Pabbi lg mamma koma alltaf að verja hvað sem er. Litla gullið gerir ekkert rangt .
Hann er búinn að tala um að siðblinda sé on the rise út af þessu
*„Þetta er líklega okkar kynslóðar „að-reykja-inn-í-bíl-með-allar-rúður-skrúfaðar-upp-og-barnið-í-aftursætinu“ augnablik,“ segir hún og bætir við að það á líklega eftir að vera álitið galið að við skyldum hafa leyft ungum börnum og unglingum að leika lausum hala á samfélagsmiðlum í framtíðinni.*
Ég veit ekki mikið um ástæður fyrir þessu ofbeldi en ég er svo algjörlega sammála þessu og jafnvel ganga skrefinu lengra og líkja þessu við tóbakksfyrirtækin á sínum tíma. Þessi samfélagsmiðlafyrirtæki vita alveg hversu skaðleg þeirra vara er börnum (og fullorðnum).
Þetta er alveg rétt.
Í dag eru börn of vön lúxus; mannasiðir þeirra eru hræðilegir, þau hafa fyrirlitningu á yfirvöldum; þau sýna öldungum vanvirðingu og elska samfélagsmiðla í stað hreyfingar. Börn eru nú harðstjórar í sínum afmörkuðu hópum, ekki þjónar heimila sinna. Þau rísa ekki lengur upp þegar öldungar koma inn í herbergið. Þau andmæla foreldrum sínum, nota samfélagsmiðla í stað þess að fara út að leika, gleypa í sig sælgæti og tiktok við matarborðið, krossleggja fæturna og leggja kennara sína í einelti.
Við höfum aldrei séð neitt líkt þessu áður.
Þetta virðist vera global þróun, hérna í Þýskalandi er nkl sama umræða í gangi útaf aukningu í ofbeldi og sérstaklega hnífaárásum hjá ungu fólki.
Eru gögn því til staðfestingar að það sé aukning á ofbeldi eða hvort það ofbeldi sem er í gangi sé grófara.
Það gefur augaleið að rót vandans er uppeldið eða réttara sagt afskiptaleysi foreldra á sínum börnum, börn læra það sem fyrir þeim er haft og ef ekkert er fyrir þeim haft finna þau það annarstaðar, oftast á röngum stöðum. Að halda því fram að tölvuleikir einir og sér valdi svona hegðun er klisja og bókstaflega rangt, ef banna ætti það sem gæti haft áhrif á viðhorf þessarra týndu unglinga væri réttast að taka bara rafmagnið af.
Ástæðan er einföld, það eru of margir “vitleysingar” að ala upp börn. Eina leiðin út úr svona þróun er að útrýma fátækt og efla félagslegan stuðning við fíkla og öryrkja. Lögleiðing flestra eiturlyfja myndi hjálpa gríðarlega þar sem fíklar gætu þá leitað sér hjálpar án þess að eiga yfir sér frelsissviptingu og skerðingu réttinda.
9 comments