[Jerome Powell](https://markets.businessinsider.com/news/stocks/jerome-powell-salary-fed-chairman-fair-central-bank-chief-economy-2023-2) er með 190.000$ í árslaun eða um 26.000.000 isk sirka, fer eftir gengi, en [Ásgeir Jónsson](https://www.vb.is/frjals-verslun/hordur-lang-launahaestur/) er með 2.200.000 isk á mánuði eða um 26.400.000 isk í árslaun. Fannst þetta bara áhugavert, þetta böggar mig þannig séð ekkert rosalega, þar sem laun í BNA geta verið rosaleg þegar það kemur að forstjórum og öðrum stjórnenda stöðum, hefði allan tíman samt búist við því að Jerome vær með miklu hærri laun, en þetta er samt á sama tíma svo íslenskt, hver hefur ekki séð listann með hæstlaunuðustu borgastjóra í heimi og á þeim lista eru 6 íslenskir borgarstjórar.

6 comments
  1. Þetta er samt tvennt ólíkt, hin klassíska laun pólitíkusa umræða á Íslandi. Sem poppar reglulega upp um bæjarstjóra/borgarstjóra með ofurlaun. Munurinn er að pólitíkusar geta verið einstaklingar sem hafa enga framtíðarsýn engan metnað, ekkert fram að færa og svo framarlega sem þeir mæta stundum og láta sjá sig þá er allt í lagi. Hvað heitir bæjarstjórinn í Garðabæ eða Mosfellsbæ og hvað eru þeir að gera, veit það einhver? Nei og öllum er drull. Það er ekki fyrr en þetta fólk, alveg svoleiðis fer út af sporinu eins og í Árborg og n.b. sérfræðingar frá ríkinu koma í eftirlitsnefnd og hrista þetta fólk og segir hvað eru þið að gera að eitthvað gerist.
    Munurinn á þessu liði og seðlabankastjóra er að Ásgeir er vel hæfur einstaklingur hann er lang skólagenginn, hann hefur unnið í einkageiranum, hann hefur kennt og skrifað allavega eina bók um hagkerfi hérna á Íslandi, hann veit hvað hann er að tala um. Ekki bera saman epli og appelsínur. Fólk hélt að það að vera Seðlabankastjóri væri það sama og hefðbundnar pólitískar stöður sem hver sem er gæti sinnt og prófaði að setja útvarpsmanninn á útvarp Matthildi í þessa stöðu og hann jós peningum í banka sem voru við það að hrynja og var nefndur einn af 25 sem olli hruni fjármálakerfisins. Þetta er staða sem við þurfum sérfræðing í og við erum heppin að hafa Ásgeir.
    Ég veit að fólk horfir á húsnæðismarkaðinn of segir að venjulegt fólk geti ekki komist inn á hann með svona háa stýrivexti, við þurfum háa stýrivexti tímabundið til að slá á verðbólgu. Þetta tímabil sem við erum að ganga í gegnum þyrfti ekki að vera svona erfitt ef pólitíkusar væru að vinna með Seðlabankanum í að slá á verðbólguna. Ég sé ekkert eftir þessum pening ef þetta kostar að hafa sérfræðinga við stjórn. Hinsvegar má vel gagnrýna laun bæjarstjóra, bæjarfulltrúar og pólitíkusa.

  2. Þetta er bara hóflegt. Ásgeir hefur imo alveg staðið sig bærilega, öfugt við trúðana sem voru áður.

  3. Sama hver er seðlabankastjóri og hvað hann gerir. Þá er ríkistjórnin, stjórnarandstaðan, viðskiptalífið og verkalýðsforystan alltaf sammála um að hann sé að gera einhverja vitleysu!
    Er nokkur hæfur einstaklingur að fara taka þetta að sér nema fyrir góð laun?

  4. Þetta virkar allt öðruvísi í USA. Laun hæst settu opinbera starfsmanna eru smotterí og tekjurnar koma úr fyrirlestrum

    Yellen hefur til dæmis fengið yfir 7 milljónir dollara fyrir að halda ræður fyrir goldman sachs og fleiri.

    Þingmenn þar eru undanþegnir lögum um innherja og hagnast flestir þar á hlutabréfum.

    Obama rukkar 400.000 dollara fyrir ræðu…

    Þessi powell gæi var milljónamæringur í dollurum talið áður en hann tók við þessu starfi. Ásgeir er örugglega blankur í samanburði.

  5. There are far less important people in Iceland making as much or more than Asgeir. Public sector pay has gone through the roof in the past 10 years. MPs, City Representatives and Municipal board members being the most egregious. Beyond their salaries they have generous dagpeningar and expenses, driving is very profitable. The government put their friends in the wage committee, with predictable results. Public sector pay should be linked by law to the minimum wage (3x, 4x etc.) and require a 2/3 parliamentary majority to change. Iceland’s getting wealthier but income inequality is rising much faster

  6. Gefur mjög svo vitlausa mynd að bera þessa tvo saman og laun þeirra, eins og það séu einu tekjurnar sem þeir hafa. Umhverfið er svo ólík.

    Powell er metinn á um 50 miljónir $ efast að Ásgeir komist nálægt þeim tölum.

    En svo má spyrja, hvað telur fólk vera eðlileg laun fyrir þetta starf?

Leave a Reply