Það sem ég vildi óska þess að þetta mál fari að springa í andlitið á ríkisstjórninni, ekkert nema pólitískt edging í marga mánuði

5 comments
  1. Ég held að þetta sé besta leiðin til að drepa traust okkar til lýðræðislegra stofnana okkar. Ég veit ekki hvað við eigum enn mikið traust eftir inni til að keyra samfélagið áfram.

    Þetta traust skiptir samt máli. Nýverið spurði einhver hvaða kenningar væru í gangi um aukningu á ofbeldi og glæpum. Ég er alls ekkert frá því að því meira sem “leiðtogar” okkar komast upp með að fara á svig við lög og reglur, sem og augljós auðgunarbrot í starfi, því minna finnst mörgum sem horfa upp á það nauðsynlegt að fara eftir öðrum lögum og reglum.

    Þetta traust skiptir í raun höfuðmáli. Það er [vargöld](https://soundcloud.com/johnny-magnets/vivid-brain-vargold-vont-en-a-versnar) í Haíti akkúrat þessa stundina. Þó svo að ástæðurnar að baki hennar eru margvísilegar, og eigi ekki allar við um okkar aðstæður, þá er traust á kjörnum fulltrúum algerlega partur af því hvernig Haíti þróaðist í það sem er hratt að fara teljast sem fallið ríki sem þarf utanaðkomandi aðstoð til að ná sér á réttan kjöl.

    Stjórnmál skipta máli, af því við skerum upp það sem við sáum. Til að gera hlutina flóknair þá tekur það áratugi að sjá virði uppskerunnar og fólkið sem tekur afleiðingunum er oftar en ekki börn fólksins sem tók ákvörðunina í einhverju skammtíma YOLO flippi.

  2. Þetta mál er orðinn farsi sem að varpar bara meira og meira ljósi á þá spillingu sem að ríkir innan Sjálfstæðisflokksins og hinir flokkarnir í ríkisstjórn eru tilbúnir að hjálpa til við að fela hana.

    Miðað við púðrið sem að hefur verið eytt í að tryggja að þessi skýrsla verði ekki opinber né neitt tengt henni sem að getur varpað ljósi á innihalds hennar þá getur þetta ekki verið annað en alvarlegt mál sem að á erindi við almenning.

  3. Ég álasa ekki refnum fyrir að vera refur. Ég veit að hann er refur og það vita það allir. á þessum tímapunkti get ég ekki með nokkru móti tekið einhverja manneskju alvarlega á pólítískum grundvelli sem “viðurkennir” ekki að sjálfstæðisflokkurinn er gerspilltur frá höfði til innyfla.

    Í besta falli get ég samþykkt að það séu dæmi um slæma spillingu eða slæma stjórnarhætti þar sem vinstri flokkarnir fá að ráða, t.d. RVK. En það er smjörklípa.

    En aðalamálið er þetta: Það vita allir að að sjálfstæðisflokkurinn er spilltur, en fólkið sem styður hann lítur svo á að þessi spilling sé annaðhvort nauðsynleg, óhjákvæmileg eða eðlileg. Svo fyrir þá sem horfa til þess að kreista fram breytingar í samfélaginu verður nauðsynlegt að horfa til þeirra sem eru ekki sjálfstæðismenn, sem blessunarlega er síminnkandi hópur. Stór, en minnkandi.

    Svo þegar og ef þetta mál springur verða pólítískar afleiðingar þess engar. Það skiptir ekkert máli. Katrín er ekki að fara að sprengja ríkistjórnina, hennar flokkur er nálægt því að detta af þingi.
    Framsókn gerir aldrei neitt nema Sjallar segi þeim að gera það. Í það eina skipti sem framsókn fékk smá bein í nefið fengu þeir simma í kafteinsstólinn. Og það vill enginn aftur. Svo framsókn gerir ekkert annað en að humma þetta af sér.

    Kosningar eru eftir 2 heil ár. þetta mál, hversu slæmt sem það gæti orðið verður grafið og gleymt. það eina sem mun standa eftir af því er síþverrandi trú fólksins á kerfið og lýðræðislegra stofnanna.

  4. Væri bara næs ef þessi kall, hann á nú stutt eftir, myndi senda fjölmiðlum þessa skýrslu.

    Trúi ekki öðru en að hann liggji á afriti.

Leave a Reply