Fór í dekkjaskipti í dag og fékk þennan miða á stýrið.

7 comments
  1. Þetta þýðir að þú átt að athuga herslu á felguróm innan 2 daga eða 60km.

    Felgurær = stöffið sem heldur hljólunum á bílnum þínum. Það er yfirleitt ekki gott ef hjólin detta af, sko…

    [https://en.wikipedia.org/wiki/Lug_nut](https://en.wikipedia.org/wiki/Lug_nut)

  2. Check your lug nuts are tight on your wheels (preferably with a torque wrench) and check tire pressure within two days or 60 km driven whichever comes first

  3. Athuga hvort dekkin séu ekki vel föst á og hvort það sé ekki nægur þrýstingur á dekkjunum eftir 2 daga eða 60km, hvort sem kemur á undan (eins og stendur á miðanum)

  4. Þetta þýðir ef að dekkin detta undan bílnum þínum þá getur þú ekki kært N1 af því að með þessari yfirlýsingu er ábyrgðin komin í þínar hendur að herða á felgu boltunum/róm

  5. Eftir að það er búið t.d. að skipta um dekk á felgum á bíl, þá þarf að keyra bílinn aðeins og svo tékka á að allar rær séu ennþá rétt hertar. Það er gert með því að herða þær aftur rétt með réttri græju.

    Þetta tekur örskamma stund. Þú mætir bara aftur í dekkjaverkstæði N1, réttir þeim miðann, og biður þá um að herða upp rærnar.

    Starfsmaður hoppar út og gerir þetta. Tekur ca 1-2 mínútur. Þú keyrir svo burt öruggur um að hjólin detta ekki undan bílnum á ferð og drepa þig.

    Ef þú ættir réttu græjuna og kynnir að nota hana, þá gætirðu gert þetta sjálfur. En þú myndir líklegast þá ekki hafa spurt þessa spurningu á Reddit.

Leave a Reply