Samfylkingin í RVK stóð semsagt fyrir því að leggja niður borgarskjalasafnið. Í Kópavogi eru Sjallar núna að gera það sama, og fordæmið fá þeir frá Reykjavík. Þá stígur Samfylkingin í Kópavogi upp í mikilli reiði og fordæmir sama verknað og Samfylkingin í Reykjavík framkvæmdi. Hvor Samfylkingin hefur rétt fyrir sér?
Og sjálfstæðismenn í Kópavogi ætla að gera það sama og sjálfstæðismenn í borginni gagnrýna meirihlutann fyrir að ætla að gera þar…
Er ekki bara raunhæfur möguleiki á að samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn fari sama í ríkisstjórn næsta kjörtímabil?
Frekar fyndið mál. Tók saman afstöðu flokka sem eru með fulltrúa í báðum sveitarfélögum mér til gamans
Flokkur | Afstaða í Rvk | Afstaða í Kóp | Samkvæm sjálfum sér?
—|—|—-|—-
Sjálfstæðisflokkurinn | Á móti | Með | Nei
Samfylkingin | Með | Á móti | Nei
Framsókn | Með | Með | Já
Píratar | Með | Á móti | Nei
Viðreisn | Með | Með | Já
Þannig að Framsókn og Viðreisn eru einu flokkarnir sem eru samvkæmir sjálfum sér í þessu máli. Kemur ekki á óvart með Framsókn þar sem þau eru í meirihluta á báðum stöðum, svo Viðreisn er eini flokkurinn sem virðist samkvæmur sjálfum sér óháð því hvort þau eru í meiri- eða minnihluta.
3 comments