Choose your character

18 comments
  1. Mission:

    Farðu niður á bryggju og sóttu Kalla Bjarna og keyrðu hann á áfangastað þar sem kókaínið er

    Komdu samt við á Bæjarins bestu og gefðu honum pylsu til að fá auka stig

  2. The DLC includes robbing Islandsbanki with a homemade air rifle, being arrested almost immediately, being sent to Litla-Hraun, escaping, and then dying in the wilderness overnight. I’d play it.

  3. Byrjar í Keflavík sem er tutorial svæðið. Vinnur þar fyrir Venezuela fólkið sem er haldið niðri af hælnum hjá kerfinu og öðrum klíkum sem nýta sér bágstadda stöðu þeirra.

    Þegar þú klárar það svæði og færð fyrsta bílinn þinn, kemstu í Hafnarfjörðinn og byrjar að vinna fyrir Pólskar klíkur. Þar upp úr ferðu að gera missions í Kópavogi og Breiðholti, innbrot og þess háttar, og byrjar að komast meira í samband við heimamenn. En um leið og þú ferð of langt og traðkar á tám í Garðabæ, þá hristast upp hlutirnir.

    Þriðji hluti gerist í gömlu Reykjavík, vestur-, austur- og miðbæ, þar um kring. Alþingismenn, leigjendur, skemmtistaðareigendur, áhrifavaldar og aktavistar eru núna komnar í spilið. Verst er að helstu mission-in þar eru aðalega “delivery missions” á custom scooter hjóli að selja eiturlyf. Toppurinn er samt svaka hnífabardagi í næturklúbb…. sem er samt bara einn gaur sem þú og einhverjir hópur af NPC’s eru að ráðast á saman.

  4. Myndi án djóks borga hálfann handlegg að geta skoðað tölvuleikjagert höfuðborgarsvæðið í sýndarraunveruleika (og skalað niður eins og Los Santos gerir við Los Angeles).

  5. Er þetta framleitt af AI ?

    Verulega svalt. Nær ákveðnum hluta íslands og íslendinga mjög vel.

  6. Þú ert Nikki, 26 ára Íslendingur með danskt ríkisfang og hræðilegan danskan hreim, nýfluttur aftur heim til Íslands eftir að hafa búið í innflytjendahverfi í Danmörku síðan foreldrar þínir fluttu út til að fara í nám. Frændi þinn, Laddi, er í sífellu að hringja í þig til að fara í partýkeilu í Egilshöll eða skemmtipílu á Bullseye. Laddi á fyrirtækið Laddabær, sem Magnús Scheving lögsækir vegna þess hve líkt nafnið er vörumerkinu hans. Íþróttaálfurinn kemur fram oftar en einu sinni og brýtur fjórða vegginn í hvert skipti.

Leave a Reply