Ég sá nýlega auglýsingu frá Seðlabanka Íslands um sumarstörf sem voru auglýst á stærstu vefmiðlum Íslands. Þetta voru vefborðar með ákaflega og vel ígrundaðri setningu: “Góður starfsandi og sveigjanleiki”

[Góður starfsandi og sveigjanleiki](https://preview.redd.it/rm5htkjvx9xa1.png?width=658&format=png&auto=webp&v=enabled&s=c79407888e19598c86ba78801bc0fefcef9feedb)

Seðlabanki Íslands er nú að hvetja til aðhalds á öllum sviðum, ellegar hækki bankinn vexti enn hraðar en bankinn hefur nú þegar gert. Aðhald og engin sóun, eru skilaboðin, sérstaklega hjá hinu opinbera þar sem allir tékkar eru óútfylltir í dag.

Ég spurði því Seðlabankann um kostnað við auglýsingar bankans sem hvetur til aðhalds, við þessa auglýsingu um sumarstarfsmann. Jú, kostnaðurinn er hér að neðan sundurliðaður og líklega kostaði auglýsingin meira en launin hjá þessum sumarstarfsmanni í sumar!

[Tölvupóstur frá Seðlabanka Íslands](https://preview.redd.it/03j972nrx9xa1.png?width=1080&format=png&auto=webp&v=enabled&s=794a16d9d43f500ebe2abfb7c4b433155aa67acc)

Ég [greindi frá svarinu á Twitter](https://twitter.com/arnarar/status/1651322908826914816) og viðbrögðin létu ekki á sér standa, hátt yfir 30 þúsund hafa séð innleggið og margir lagt orð í belg. Eitt virtasta viðskiptahlaðvarp landsins í dag, Pyngjan, [lét ekki sitt eftir liggja](https://drive.google.com/file/d/164f9ZbO0S5t88XXZcVs9cvfN5RFXfO0i/view?usp=sharing).

Þetta er skammarlegt fyrir Seðlabanka Íslands. Ég veit það frá fyrstu hendi að hárblásararnir sem síðast voru notaðir í bankahruninu voru dregnir upp aftur á Kalkofnsvegi.

Mórallinn með sögunni er sá að við óbreyttir borgarar þurfum að fylgjast með óráðsíðu hins opinbera og við megum og getum fengið svör við kostnaðinum við sukkið.

Gerum það!

3 comments
  1. Þetta er vandamálið með ríkisrekin batterý. Þegar þau fara í einhverja svona vinna rukkar vertakinn allt í botn og miklu meira en honum dytti í huga að rukka einkarekin fyrirtæki

    Á meðan er þetta bara borgað án þess að velta einhverju fyrir sér varðandi prísinn. Sem er svo sem skiljanlegt þar sem fólkið sem tekur á móti reikningunum hefur enga tilfinningu á peningana sem það er að stýra því það er endalaust til af honum.

Leave a Reply