Ísland hrapar niður í 18. sæti á lista yfir fjölmiðlafrelsi í heiminum

10 comments
  1. Eiga Íslendingar erfitt með að horfast í augu við svona staðreyndir? Mér finnst þetta persónulega vera kanarífuglinn sem varar okkur við hnignandi lýðræði og auknu auðræði. Fjársterkir aðilar hafa alltof mikil ítök hér og beita gríðarlegum þrýstingi til að ná sínu fram. Meira að segja var gengið svo langt að stofna “skæruliðasveit” á vegum Samherja til að grafa undan blaðafólki. Það er eitthvað mikið að hérna.

  2. Þetta er mælikvarði á frjálshyggju og hversu slakar reglur eru á einkarekstri.

    Það er best að vera með hreinan ríkisrekinn fjölmiðil sem sér til þess að gróði og hagnaður sé ekki að spilla fyrir sannleikanum.

    Í raun er best að vera neðst á þessum lista enda eru þar ríkin sem hafna einkarekstri og eru með sterkan, jafnan ríkisfjölmiðil.

  3. “Hrapar” niður um heil þrjú sæti, úr 15. í það 18. Má benda á að árin 2015 og 2016 vorum við í 19. og 21. sæti. Þetta er einfaldlega í samræmi við niðurstöður síðasta áratugar.

    Eins og Kristinn sagði í annarri athugasemd eru það aðallega markaðsaðstæður og skortur á auglýsingatekjum sem að standa fjölmiðlum fyrir þrifum, enda stöndum við okkur áberandi verst í “economic indicator”, þar erum við í 27. sæti. Við hækkum um sæti í legislative, social og security indicators svo staðan hefur batnað milli ára á nokkrum sviðum.

    Þessi fyrirsögn heimildarinnar er lýsandi fyrir stöðu fjölmiðla, þeir verða að fá meiri auglýsingatekjur og besta leiðin til þess eru fleiri klikk. Og þess vegna fáum við svona dramatískar fyrirsagnir.

  4. árinn 2006 til 2008 vorum við í 3ðja sæti.
    hversu lágt getum við lagst,
    er ekki kominn tími til að snúa þessu við.
    Eg segi áfram áfram elskulega fólk.

  5. Ætla vera með umdeilanlega skoðun á þessu (kannski), en fjölmiðlar á Íslandi eru hreint út sagt lélegir (fyrir utan örfáa t.d á heimildin og kveikur). Þeir mæta illa undirbúnir í viðtöl við bankastjóra og stjórnmálamenn, eru nánast allt einungi drottningar viðtöl við þau. Þau spurja ALDREI gagnrýninna spurninga eða bara erfiðra spurninga sem gerir það oþolandi að fylgjast með þeim í fréttatímanum…

Leave a Reply