Hef verið að skoða náttúrulyf til að festa svefn, hef verið í vandræðum með svefninn minn af og til langar þess vegna að spurjast fyrir hvort einhver hér hefur prófað þetta sem ég set mynd af fyrir neðan 🙂

er að spá í hvort sé betra eða hvort einhver getur mælt með öðru hvoru 😀

13 comments
  1. Eitt er náttúrulyf, hitt (melatonin) er náttúrulegt hormón sem stýrir líkamsklukkunni er varðar svefn og vöku.

    Melatonin getur hjálpað þér að sofna, en orsakar ekki að þú eigir erfitt með að vakna líkt og önnur hefðbundin svefnlyf.

  2. Mæli ekki með Melatonin ef komist er hjá því. Nota það bara í “neyð” þegar þú virkilega þarft að sofna. Melatonin er hormón sem líkaminn á að framleiða náttúrulega og þú vilt ekki að líkaminn þinn sé háður utanaðkomandi hórmunum til að fúnkera eðlilega.

  3. Melatonin er mjög hentugt til þess að koma svefninum í lag þegar maður er búinn að snúa sólarhringnum við

  4. Mér finnst Melatónínið virka best, en ég skola því niður með Dr Frei Anti-Stress freyðitöflu (Magnesíum, B6, K & C-vítamín, og Taurín). Gott kombó mæli með.

  5. Ég keypti mér melatonin í spreyformi í apóteki. Finnst það virka mjög vel. Er víst fljótara að fara inní kerfin en töflur.

  6. Mæli hiklaust með Sefitude.
    Tek vanalega eina til tvær tíl að hjálpa mér að sofna, og svo eina melatónín töflu. Það hefur virkað mjög vel fyrir mig.
    Getur fengið sefitude i öllum apótekum 🤙

  7. L-theanine og magnesium glicinate hafa svínvirkað fyrir mig. Einnig skil ég alltaf símann minn eftir inní stofu hjá mér, fer aldrei með hann inní svefnherbergi áður en ég fer að sofa. Gott að lesa fyrir svefninn líka hefur mjög róandi áhrif.

  8. PSA:
    Ef þú tekur of mikið af melatónín yfir langt skeið þá heldur líkaminn þinn að það þurfi ekki að framleiða meira af því fyrst það er alltaf í kerfinu.

    Farið varlega, melatónín skortur er meira helvíti en venjulegt svefnleysi.

    Náttúrulyf blandað með vanillu og lavender virkar vel.

Leave a Reply