
„Það hafa nokkrir fjölmiðlar birt fréttir upp úr borgarvita Maskínu, þar sem þessi niðurstaða liggur fyrir. Samt hefur engin kosið að greina frá þessu. Einn greindi meira að segja hvort fólki í miðbæ líkaði fremur við Dag B. en fólki í efri byggðum, menn hafa týnt allskyns til nema þetta. Og af því tilefni spyr ég: Hvar á jarðríki væri það ekki helsta fréttin að oddviti lítils sósíalísks flokks njóta lang mesta trausts allra kjörinna fulltrúa, meira en þau sem gegna æðstu embættum og eru linnulaust í fréttum og meira en oddvitar stærstu flokkanna. Það má vera að fjárskortur hái íslenskum fjölmiðlum en þó held ég að það sé fyrst og fremst almenn heimska og undirlægjuháttur við valdið sem grefur hraðast undan þeim.“
5 comments
Samstöðin er árórsmiðill Gunnars Smára. Þori að veðja að hann er líka að skuggastýra borgarstjórnarflokknum. Hvaða hafa sósíalistar gert í borginni? Ef þau fengju að ráða yrði sett upp gúlög og stasí sveitir. Koddu með eitt dæmi. Ég bíð….
Það er mjög auðvelt að vera vinsæll í stjórnarandstöðu vegna þess að þú þarft ekki að taka ábyrgð á nokkrum sköpuðum hlut.
Er ekki að verða komið gott af þessu endalausa Sósíalistaflokks- og Samstöðvar spammi?
Hvaða máli skiptir þessi skoðunakönnun annars og hvaða grín kenning er það að vísvitandi sé ekki verið að fjalla um niðurstöðurnar? Ef Sanna er svona vinsæl þá gengur Sósíalistaflokknum bara vel í næstu kosningum og lýðurinn hefur talað – gott mál. Það er eins og allt sé ein stór samsæriskenning í huganum á sumum af þessum sósíalistum.
“Það má vera að fjárskortur hái íslenskum fjölmiðlum en þó held ég að það sé fyrst og fremst almenn heimska og undirlægjuháttur við valdið sem grefur hraðast undan þeim”
já
>**user reports:**
>
>1: Search before asking
Ha?