Stjórnarþingmaður vill hækka skatt á bankana – RÚV.is

4 comments
  1. Kann ekki að senda inn link með texta, hvernig virkar það?

    Er þetta ekki löngu tímabært? Bankarnir hafa skilað slíkum hagnaði ársfjórðung eftir ársfjórðung ár eftr ár. Virðast stöðugt setja ný met í hagnaði.

    Nú er ég ekkert svakalega vinstri sinnaður þegar kemur að fjármálum. En stofnanir eins og bankar eiga í mínum huga ekki að vera gróðrarvélar fyrir eigendur þegar þær þjóna svo miklu þjónustuhlutverki við almenning.

    Þennan gríðarlega hagnað hlýtur að mega sjá sem nokkurskonar auka skattlagningu á fólkið í landinu. Hvaðan kemur hagnaðurinn annars?

    Tek það fram að ég veit mjög lítið um fjármál og hef enga menntun á því sviði, sem er sennilega augljóst í þessum pósti mínum.

  2. Það er mögulega vert að minnast á að bankarnir greiða nú þegar hærri skatta en flest önnur fyrirtæki. Líkt og önnur fyrirtæki, þá greiða bankarnir bæði tekjuskatt og tryggingagjald, en ofan á það bætist síðan sérstakur fjársýsluskattur (viðbótartekjuskattur á fjármálafyrirtæki) á tekjur umfram milljarð *og* sérstakur bankaskattur sem reiknast út frá skuldum bankans.

Leave a Reply