Væri slæmt að enda með 35 þúsund í­búðir sem upp­fylli ekki skil­yrði um dags­birtu – Vísir

9 comments
  1. Malbikarinn: *Það verður að tryggja að gott og nóg af malbiki sem uppfyllir skilyrði um öryggi sé malbikað á bílastæðum þessara íbúða.*

    Gróðurfyrirtækið: *Það má ekki verða svo að fólkið komi til með að búa an nægs gróðurs í þessum nýju hverfum!*

  2. “Er það nokkuð sniðugt að vera byggja alveg helling af íbúðum? Nei ég bara spyr!”

    Ég bíð bara eftir því að fá að rífast við áhveðna fjölskyldu meðlimi þegar þeir byrja að endurtaka þennan áróður.

  3. Tja, það er alveg eitthvað til í þessu. Þörfin á að skaffa fólki heimili á viðráðanlegu verði trompar auðvitað allt annað, en við eigum samt ekki að láta fólk kúldrast í einhverjum holum ef hjá því er komist.

  4. > Nauðsynlegt sé að því verði stýrt hvernig uppbygging fari fram og verktakar eigi ekki að sjá um það einir.

    Þrýstihópur stéttar vill að stjórnvöld skikki fólk til að kaupa hjá þeim þjónustu.

    Meiri helvítis rentusóknin. Vona að stjórnvöld standi í lappirnar.

    Ef fólk vill frekar borga meira fyrir einhverja hönnunaríbúð þá er þeim frjálst að gera það. Ef fólk vill frekar ódýrari íbúð sem er ekki sérhönnuð (jafnvel bara eftir einhverju stöðluðu template-i) þá ætti þeim líka ða vera frjálst að gera það.

  5. Býst við að þessar vilji komast að borðinu og þvinga verktaka til að reka sína arkitekta sem eru ráðnir til að hámarka ákveðna hluti?

    Held að þær myndu ekki hika við að gera eins og verkkaupandinn myndi biðja um að yrði hannað fyrir sig.

    Það er ekki eins og þeir sem eru að láta byggja húsnæði myndu sætta sig við að arkitektinn ráði öllu og hanni eitthvað langt unfram kostnaðaráætlun eða?

  6. Partur af þjóðinni býr í eins glugga bílskúrum eða í kolageymslum. Þessar íbúðir sounda bara mjög fínt. En auðvitað eru ábendingar alltaf góðar.

Leave a Reply