Diljá komst ekki áfram

18 comments
  1. Fannst flutningurinn betri í Söngvakeppninni.
    Óvinsæl skoðun en hún hefði kannski aðeins mátt tóna niður Magnús Scheving.
    En súrt engu að síður, greinilega setja aftur hlífina yfir grillið fyrir laugardaginn.

  2. Mér fannst flutningurinn ekki alveg nógu góður, ef til vill stress plús að vera spriklandi og sparkandi út í loftið. Hefði átt að vera með danshöfund með sér í þessu eða einhvern sem hefði átt að segja henni að tóna þetta aðeins niður.

  3. Ekkert sem hún hefði getað gert betur mv lögin sem komust áfram. Eurovision er löngu búið að sanna það að keppnin snýst mjög lítið um sönghæfileika og lagasmíði

    Ástralía komst áfram…

  4. Íslendingar þurfa að læra að tapa með reisn.

    Nú verða næstu vikur í fjölmiðlum undirlagðar þessu, Diljá hitt – Diljá þetta.

    It’s over – move on.

  5. Ég vona líka að við íslendingar förum að fatta að það er ekki kúl að syngja á ensku lengur

    Það komust allir áfram sem sungu á móðurmáli sínu, nema Rúmenía.

    Af síðustu 5 sigurvegurum í Eurovision, þá hafa 3 sungið á sínu móðurmáli.

  6. Gjörsamlega galið að hún hafi ekki komist áfram. Redditors í þessum þræði að tala um að “flutningurinn hafi ekki verið góður”, hvað eruði að reykja?

    Manneskjan fór í handahlaup á sviðinu á meðan hún söng hæstu tóna eins og einhver 80’s rokk stjarna.

    Skandall.

  7. Mér hefur alltaf fundist lagið frekar slappt. En Diljá var mjög góð og er hörku performer, hún á ekkert nema hrós skilið.

  8. Þó ég horfi ekki á eurovisjón almennt þá sá ég þessa keppni, þótti þetta lag ekki endilega vera málið en frammistaða hennar var góð. En miðað við samkeppnina hefði ég nú búist við því að komast í sjálfa keppnina. Samt þótti mér gaman að sjá að Ástralarnir voru með toyota mr2 það dugði til þess að fá mig til að halda með Ástralíu hehe. 🦊

  9. Ég horfi á þetta svona:

    Ef við komumst ekki í lokakeppnina er 0 séns að við vinnum, sem er gott, vegna þess að hýsa eina svona keppni myndi senda okkur rakleiðis á kúpuna! 😀

  10. Við þurfum að einbeita okkur meira að því að senda eitthvað flippað/öðruvísi og helst á íslensku, það hefur virkað best síðustu ár

Leave a Reply