Austurvöllur á morgun klukkan 14!! Ríkisstjórnin fórnar almenningi svo þau ofurríku geti hagnast. Ástandið er rétt að byrja og mun snarversna. Sínum hvað í okkur býr, látum í okkur heyra. Neitum að borga 600 milljónir fyrir 40 milljón króna lán. Það á að hreppa okkur í þrældóm!!

Austurvöllur á morgun klukkan 14!! Ríkisstjórnin fórnar almenningi svo þau ofurríku geti hagnast. Ástandið er rétt að byrja og mun snarversna. Sínum hvað í okkur býr, látum í okkur heyra. Neitum að borga 600 milljónir fyrir 40 milljón króna lán. Það á að hreppa okkur í þrældóm!!
by u/AlternativeSpell8707 in Iceland

16 comments
  1. [https://fb.me/e/gdwlIHQCa](https://fb.me/e/gdwlIHQCa)

    Fram koma:

    Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR/LÍV.

    Helgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara.

    Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna.

    Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Samtaka leigjenda.

    Fundarstjórn: Magga Stína.

    Tónlistarflutningur: Valdimar.

    Ef þú hefur fengið nóg af hagnaði bankanna og stórfyrirtækja, ef þú hefur fengið nóg af kerfisbundnu niðurrifi grunnstoða samfélagsins, ef þú hefur fengið nóg af aðgerðarleysi stjórnvalda, ef þú hefur fengið nóg af stýrivaxtahækkunum Seðlabankans, ef þú hefur fengið nóg af versnandi stöðu í heilbrigðiskerfinu, ef þú hefur fengið nóg af stöðunni á húsnæðismarkaði, ef þú hefur fengið nóg af versnandi afkomu, eða hefur áhyggjur af framtíð barnanna okkar.

    Eða hefur þú fengið nóg af einhverju öðru sem betur má fara í okkar samfélagi?

    Þetta þarf ekki að vera svona. En staðan mun versna. Hún mun versna þangað til við rísum upp og segjum, nú er nóg komið!

    Deildu og rísum upp saman!

    Við byrjum laugardaginn 13.maí kl.14:00

  2. >Neitum að borga 600 milljónir fyrir 40 milljón króna lán

    Hvað er þetta að vitna í?

  3. Ríki og sveitafélög þurfa að byggja heimili en ekki láta einkaðila sjá um þetta.
    Ríki og sveitafélög þurfa að fara af leigumarkaðnum og gerast leigusalar í staðinn.
    Þetta er eina leiðin til þess að húsnæðis markaðurinn sé ekki eitthvað vilta vestrið.
    Sem dæmi á ríkið ekkert skammtíma húsnæði sem hægt er að nota ef neyðarástand eða óhapp á sérstað eins og húsbruni eða aurskriða.
    Nú er tildæmis tækifæri fyrir íslenskaríkið að kaupa allar 1700 íbúðirnar af Heimstaden.

  4. Á meðan borgum við undir eitthvað erlent stórríkt lið sem kemur að utan og lokar öllu með gjörsamlega óþarfa öryggisgæslu en VIÐ þurfum að borga það. 1400 milljónir fyrir öryggisgæslu, hvað er fokking málið, hvað er að gerast í hausnum á þessu liði??

  5. Það er nú svolítið stupid að verða reiður yfir verðtryggingu ef maður skilur hana ekki.
    Þessi 600 milljón króna tala gerir ráð fyrir hellings verðbólgu allan tímann, sem er verðrýrnun krónunnar. Sem dæmi, ef við gerum ráð fyrir 8,5% verðhækkun á ári, mun þessi 40m íbúð kosta milljarð eftir 40 ár. (Það er nálægt meðalhækkun húsnæðisverðs síðustu 30 ár, en verðbólgan var nær 4%.)
    Svo þetta er fáránlega óraunhæf tala til að reikna með hvað varðar uppgreiðslu lánsins, en mjög lág þegar það kemur að væntanlegu verðmæti íbúðarinnar.
    Fokk verðtryggð lán 🙄

  6. Mæta þangað og kvarta undan grundvallarundirstoð krónunnar eða, kannski bara, hætta að kjósa flokka sem vilja ekki fara inn í ESB og skipta um gjaldmiðil og virkilega leysa vandamálið

  7. Oki ætla spá því hvernig þetta fer!

    1. Byrja af smá hörku í byrjun með lélegum slagorðum og trommum/lúðrum.

    2. Mun svo hægt og rólega lognast útaf innan við viku…

    3. Einhver annar “skandall” kemur upp og fólk gleymir þessu…

    Íslendingar kunna ekki að mótmæla! Vantar aftur motmæli eins og eftir hrunið

  8. Hættið bara að kjósa D, B og VG… og sleppið því að kjósa krúttflokka sem munu aldrei breyta neinu..

    Samfylking, Viðreisn og Píratar er það eina sem er í boði

  9. Já krefjumst þess að fólk taki próf sem sýnir að þau skilji hvernig lán eru reiknuð áður en þau taka lán fyrir tugi milljóna.

    Lánið er ólíklega að fara að kosta 600m þó reiknivélin sýni það í núverandi verðbólgu og jafnvel þó það myndi gera það þá væri það rýrnun krónunar og laun væru þá margföld það sem þau eru í dag.

Leave a Reply