Neysla ríka fólksins er að valda verðabólgunni

17 comments
  1. Lánið mitt hefur semsagt tvöfaldast því ríkasta fólkið á svo mikinn pening venjulegt fólk þarf að gefa peningana sína til bankanna og verða fátækara til að bjarga efnahaginum en ríkasta fólkið þarf ekkert að gera og jafnvel ítir undir verbólgu?

  2. Vá hvað ég er hissa.

    Er fólkið sem er ekki með lán á húsinu sínu að eyða peningumm eins og enginn sé morgundagurinn meðan almenningur sveltir?

    Sjokkerandi.

  3. Þetta er náttúrulega miklu fjölþættara vandamál en bara ‘ríka fólkið að eyða of miklu’. En eitt sem er alveg víst, þetta er ekki almennum borgurum að kenna. Þeim sem verðbólgan og óhóflegar stýrisvaxtahækkanir bitna mest á.

    [Mætið á mótmælin á morgun kl. 14:00.](https://fb.me/e/1bZJsp9uX)

  4. Vá ég hefði aldrei haldið að óheft neysla og eyðsla þeirra sem að eiga peninga gæti aukið undir verðbólgu.

    Hélt alltaf að það væri fólkið sem leigir og er að lifa frá launaseðli til launaseðils án þess að geta sparað eða eytt í allskonar væri aðaldrifkrafturinn á bakvið verðbólguna /s

  5. Það hlýtur að vera lágmark að rökstyðja svona málflutning að einhverju leyti. Algjör ruslmiðill.

    Ég sé ekki hvernig einkaneysla jafnvel ríkustu þjóðfélagshópana, hvað þá þorra launafólk eins og hann talar um, sé að miklu leyti frábrugðin þeim launalægstu þegar kemur að því sem er notað við mælingar á verðbólguvísitölum.

    Það skiptir engu hversu ríkur þú ert, þú drekkur ekki margfalt meiri mjólk eða kaupir mikið fleiri þvottavélar en við almúginn.

    Verðbólgan er innflutt, allir þurfa að kaupa sömu nauðsynjarnar þannig að öllum hækkunum er velt út í verðlag og nákvæmlega enginn þarf að vera vondi eða góði kallinn.

    Allir eru að borga hlutfallslega meira og ef ríka fólkið er að kaupa svona mikið meira er þá tapa þau mikið hærri krónutölum.
    Óþolandi þegar það á alltaf að skipta fólki upp í fylkingar, það vilja allir losna við þessa verðbólgu.

  6. Og ég er ennþá að spá í af hverju voru þið ekki búin að breyta lánið ykkar í óverðtryggð fyrir árum síðar…

  7. Ríkissjóður rekinn með 165 milljarða halla á sama tíma og hagkerfið er sjóðandi heitt og það mælist 6,4% hagvöxtur og 10% verðbólga. Það er gjörsamlega galið. Sveitarfélögin eru svo ekkert skárri hvað það varðar.

    Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn var að gera athugasemd við rekstur hins opinbera nú um daginn. Voru í raun bara að segja yfirvöldum að *fokking chilla smá* og draga úr öllu þessu *unproductive spending*.

    Opinber gjöld voru flest hækkuð um ~15% um áramótin þrátt fyrir að verðbólgan væri svona há.

    Þrátt fyrir að heimsmarkaðsverð á olíu hafi hrunið um tugi prósenta þá lækkaði bensín verð ekki aftur í takt við það. Ólíkt því sem gerðist með bensín verð í Danmörku, Bandaríkjunum og víðar þegar heimsmarkaðsverð á olíu tunnu lækkaði frá c.a. $100 niður í c.a. $65, þá er bensín verð á Íslandi ennþá sjúklega hátt.

    MS og birgjar velta auknum hráefnis kostnað út í verðlagshækkunum langt umfram hækkanir á hráefni.

    Seðlabankinn lækkaði stýrivexti niður í 0.75% í Covid sem sprengdi upp markaði og fasteignir.

    Ferðaþjónusta og neysluvenjur fólks hafa vissulega mikið að segja en í alvöru talað, þessi grein er djók.

    Ef einhver er með tíu sinnum hærri tekjur en þeir tækju lægstu þá er sá aðili ekki að fara 10x oftar í klippingu, versla inn 10x meira í Bónus eða kaupa sér 10x fleiri gleraugu.

  8. > Seðlabankinn segir réttilega að það sé þensla (ofhitun) í hagkerfinu, en horfir framhjá helstu orsökunum.
    > [Skv. höfundi greinar, ekki seðlabankastjóra] Helsta orsökin er taumlaus ofvöxtur ferðaþjónustunnar sem kallar á mikla fjárfestingu og gríðarlegan innflutning á vinnuafli, sem kyndir undir verðbólgu.

    Verðbólga verður til þegar peningaflæði hækkar umfram framleiðni. Augljóslega veldur hækkun framleiðni ekki verðbólgu.

    Ætli það sé ekki stórkostlega leiðinlegt að þurfa alltaf nudda veruleikann til þess að passa inn í heimsmyndina sína?

  9. Þetta er svo mikið kjaftæði að ég hélt að ég væri að lesa the onion.

    Þetta er mjög einfallt;

    Eftirdrög covids faraldurs, stríðið í úkraínu, skortur á mörgum aðföngum, Hrap húsnæðismarkaðs kína hafa ollið fall margra fyrirtækja og ofprentun gjaldmiðla heims , þetta helst allt saman í hendur við okkar efnahagskerfi og útskýrir verðbólguna.

    Ekki eitthvað irrelevant 1% pakk íslands sem er dropi í hafsbotni þann fjárhag heims sem er að falla.

    Heimskir íslendingar elska að kenna ríka fólkinu og sjálfstæðisflokknum um, þetta er sorglegt.

Leave a Reply